Ormur er rómantíska hliðin á Góa 13. febrúar 2010 02:30 Gói, eða Ormur Óðinsson, í rómantískum gír í hópi fagurra kvenna úr Gauragangi. fréttablaðið/anton „
Ormur Óðinsson er rómantíska hliðin á mér,“ segir Gói, eða Guðjón Karl Davíðsson, sem leikur hinn 17 ára Orm í sýningunni Gauragangur sem verður sett á fjalirnar í Borgarleikhúsinu 19. mars. Gói, eða Ormur réttara sagt, gerði sér lítið fyrir og gaf öllum stelpunum sem leika í Gauragangi rósir og konfekt í tilefni af Valentínusardeginum sem er á morgun. „Mér fannst alveg tilvalið að vera smá rómó,“ segir hann. Uppátækið féll vel í kramið, eins og kannski gefur að skilja. „Þær voru nú sjúkar í mig fyrir en þetta var eiginlega hálf vandræðalegt, þær voru svo ánægðar með þetta.“ Gói segir að æfingarnar fyrir Gauragang hafi gengið mjög vel. „Við erum farin að æfa á stóra sviðinu í leikmynd. Þetta er rosalega skemmtilegt leikrit eftir Ólaf Hauk og tónlistin eftir Nýdönsk er frábær. Þetta er líka geggjaður hópur sem ég er að vinna með.“ Rúmri viku eftir frumsýningu Gauragangs stígur Gói á svið í Laugardalshöllinni á Latabæjarhátíðinni, 27. mars. Þar verður hann í hlutverki Glanna glæps, sem hann hefur leikið nokkrum sinnum áður. „Ég hef verið í Latabæjarhlaupunum tvisvar sinnum. Reyndar gifti ég mig þegar Latabæjarhlaupið var í fyrra. Það var frekar óheppileg tímasetning því ég gat ekki verið Glanni þá,“ segir Gói og bætir við: „Þetta verður voða gaman og það er heiður að fá að fara í fötin hans Stefáns Karls. Það er gaman að það verði haldið svona stórt dæmi fyrir börn, svona stórtónleikar þar sem allir vinir barnanna eru samankomnir á einum stað. Þarna verður flott hljóðkerfi og þetta verður flott sýning. Það gerist ekki betra.“ -fb
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira