Engin leynd yfir tölvupósti 11. ágúst 2010 03:15 Már Guðmundsson.
Aðallögfræðingur Seðlabankans, Sigríður Logadóttir, segir að engin fyrirvari hafi verið gerður um notkun viðskiptaráðuneytisins á tölvupósti sem hún sendi lögfræðingi ráðuneytisins, en hann fjallaði um heimild til gengistryggingar lána og var endursögn á minnisblaði Sigríðar sama efnis. Hins vegar hafi lögfræðiálit Lex um þetta ekki átt að fara víðar en til lögfræðings viðskiptaráðuneytisins, enda tíðkist ekki að utanaðkomandi álit sé notuð af öðrum en þeim sem pantar það. Bæði í minnisblaðinu og lögfræðiálitinu er reifað að bann sé við því að verðtryggja skuldbindingar í íslenskum krónum á grundvelli gengis erlendra gjaldmiðla. Þetta kom einnig fram í tölvupóstinum. Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra sagði um lögfræðiálitið á Rúv í gær að það væri „mjög óvenjulegt fyrirkomulag“ að Seðlabankinn hafi ákveðið „að upplýsa ekki ráðherra um þetta og afhenda lögfræðingi í viðskiptaráðuneytinu þetta með þessum formerkjum“. Sjálfur hafi hann ekki heyrt af því fyrr en síðsumars eða um haustið. Arnór Sighvatsson, aðstoðarbankastjóri Seðlabankans, segir að hann og aðallögfræðingur hafi verið sammála um það á sínum tíma að senda álitið til viðskiptaráðuneytisins: „Það var aldrei ákveðið að upplýsa ekki. Það var ákveðið að upplýsa með þessum hætti.“ Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í gær óeðlilegt að upplýsingarnar hefðu ekki verið kynntar henni. Hún hefur óskað eftir skýringum bankans vegna þessa. Seðlabankastjóri, Már Guðmundsson, segir að hann hafi ekki verið í bankanum á þessum tíma en muni kanna málið nánar og svara forsætisráðherra. - kóþ
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira