Hreinsunarstarf gengur vel í Vík - áfram öskufall í Eyjum Jón Hákon Halldórsson skrifar 15. maí 2010 17:09
Rösklega áttatiu manns tóku þátt í hreinsunarstarfi við Vík í Mýrdal í dag eftir mikið öskufall þar í liðinni viku. Guðmundur Ingi Ingason, yfirmaður þjónustumiðstöðvar almannavarna, segir að fólkið sem taki þátt í vinnunni koma víða að af landinu og úr ólíkum þjóðfélagshópum. Stórfenglegt sé að sjá samhuginn í fólki. Hann segir að hreinsunarstarfið hafi gengið mjög vel enda sé veður með besta móti. Hreinsunarstarfinu verði haldið áfram á morgun og þegar hafi tugir manna skráð sig til þátttöku. Áfram öskufall í Vestmannaeyjum Frá almannavarnanefnd Vestmannaeyja berast þær fréttir að þar sem spáð sé áframhaldandi norð- og norðaustlægum áttum um helgina séu líkur á áframhaldandi öskufalli í Vestmannaeyjum frá eldsumbrotunum í Eyjafjallajökli. Umtalsvert öskufall hafi verið í Vestmannaeyjum síðasta sólarhringinn og öskufjúk nú í bænum. Almannavarnarnefnd Vestmannaeyja bendir fólki á að unnt er að nálgast rykgrímur á lögreglustöðinni. Þá er unnt að nálgast grímur á Heilsugæslunni á opnunartíma. Bændur brynni dýrum vel Búfjáreigendum er bent á að brynna búfénaði vel í þessu ástandi og þeir sem eiga þess kost að gefa fénaði sínum á húsi geri það fremur en að beita á haga. Almannavarnarnefndin bendir fólki á að afla sér upplýsinga um áhrif öskufalls á fólk og búfénað á heimasíðu landlæknis og matvælastofnunar. Fólki með öndunarfærasjúkdóma er ráðlagt að halda sig innandyra á meðan ösku gætir í andrúmslofti og í miklu öskufalli eða fjúki er það besta ráðið fyrir alla að vera ekki utandyra að óþörfu til að forðast óþægindi. Bílstjórum er bent á að aka rólega um bæinn til þess að þyrla ekki upp ösku að óþörfu.
Mest lesið Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Innlent Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Innlent Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Innlent Ítrekað hjólað á móti umferð Innlent Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Innlent Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Erlent „Hverjir eru á bak við það?“ Erlent Fleiri fréttir Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Sjá meira