Efnahagskreppan aðalviðfangsefni Rauða krossins í dag Jón Hákon Halldórsson skrifar 15. maí 2010 09:04 Sólveig Ólafsdóttir hjá Rauða krossinum. Mynd/ Vilhelm.
Efnahagskreppan og áhrif hennar á starf Rauða krossins í íslensku samfélagi er meginviðfangsefni aðalfundar Rauða kross Íslands sem haldinn er í dag. Hátt á annað hundrað fulltrúar frá 46 deildum sækja aðalfundinn.Að sögn Sólveigar Ólafsdóttur, sviðsstjóra útbreiðslusviðs Rauða krossins, verður skýrslan „Hvar þrengir að?" sem kynnt var í gær notuð til grundvallar við mótun nýrrar stefnu félagsins til ársins 2020. Skýrslan var að hennar sögn unnin til að finna þá hópa sem búa við verstu kjörin í íslensku þjóðfélagi svo félagið geti skilgreint hvar þörfin fyrir aðstoð er mest hverju sinni. Eftir samskonar kannanir sem gerðar voru 1994, 2000, og 2006, jók Rauði kross Íslands til að mynda starf sitt með fólki með geðraskanir, efldi heimsóknarþjónustu fyrir aldraða og sjúka til að rjúfa félagslega einangrun, og hleypti af stokkunum verkefnum í þágu innflytjenda. Sérstakur gestur aðalfundarins er Georg Habsburg, formaður Rauða krossins í Ungverjalandi. Hann flytur erindi um viðbrögð Rauða krossins við þeim efnahagsþrengingunum sem Ungverjar eru að ganga í gegnum. Almenningur hefur orðið mjög illa úti vegna óraunhæfra lánaviðskipta, myntkörfulána, atvinnuleysis og óstöðugleika gjaldmiðilsins. Fjölmargar hliðstæður er að finna um afleiðingar kreppunnar í Ungverjalandi og á Íslandi.
Mest lesið Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Erlent Þrír handteknir á samkvæmi Vítisengla Innlent „Hann fékk einfaldlega ekki þá hjálp sem hann þurfti á að halda“ Innlent Lögreglumenn með brotnar tennur og harðorður Elon Musk Erlent Jóhannes Valgeir er látinn Innlent Ekki blettur á ferlinum að missa vinnuna Innlent „Ég hélt að hann yrði forstjóri“ Erlent Umfangsmikil lögregluaðgerð í Hamraborg Innlent Þrír horfnir ferðamenn í Færeyjum Erlent Rússnesk flygildi rufu lofthelgi NATO Erlent Fleiri fréttir Farmur flugvélaeldsneytis hafi ekki uppfyllt gæðastaðla Þjófur fúlsaði við málverkunum en tók nóg af bjór Veit um fjögur sjálfsvíg tengd gervigreind Enn deilt um sameiningu: „Í raun sé verið að leggja niður Háskólann á Akureyri“ Vill drónavarnir á Íslandi Fannar bæjarstjóri kveður Grindavík Sundlauginni í Reykholti í Bláskógabyggð lokað í eitt ár Lögreglan vilji kæfa glæpahópa í fæðingu Farið yfir Vítisenglamálið og drónavarnir á Íslandi Neysluvatnið óhreint eftir að aurskriða féll Tæplega fimmtíu komast ekki um borð eftir að neyðarrenna var opnuð fyrir mistök Ekki blettur á ferlinum að missa vinnuna Myndband: Lögregla stóð vörð vegna Vítisenglaveislu Útgjöld vegna útlendingamála lækka um þriðjung Halla mun funda með Xi Jinping 40 ára afmæli Þorlákskirkju fagnað í Þorlákshöfn Vítisenglar lausir úr haldi og týndir ferðamenn Mikilvægt að sýna Grænlendingum stuðning Allir þrír lausir úr haldi Forseti Íslands ræðir fyrsta árið í embætti Í fangaklefa grunaðir um ólöglega dvöl Þrír handteknir á samkvæmi Vítisengla Umfangsmikil lögregluaðgerð í Hamraborg Breiðhyltingar bíði í hálftíma eftir lögreglu: „Verður þetta þá ekki bara búið?“ Mikillar vanþekkingar gæti á þjónustu við trans börn Sungið og sungið í Tungnaréttum Jóhannes Valgeir er látinn ÁTVR græði á misnotkun kerfisins sem bitni á úrvali Jóhannes Óli er nýr forseti Ungs jafnaðarfólks ÁTVR stórgræði á misnotuðu kerfi og lögreglustöð í Breiðholti Sjá meira