Innlent

Skilaði áburðinum og sendir féð í sláturhús

aska féll víða Öskufalls varð vart allt vestur á Snæfellsnes í gær. Þessi mynd var tekin í Fljótshlíðinni, þar sem öskulag hafði sest á heyrúllur.frettabladid/Pjetur
aska féll víða Öskufalls varð vart allt vestur á Snæfellsnes í gær. Þessi mynd var tekin í Fljótshlíðinni, þar sem öskulag hafði sest á heyrúllur.frettabladid/Pjetur

„Ég var að skila áburðinum. Við erum að huga að því að koma kindunum í burtu og svo því hvað við eigum að gera við nautgripina.“

Þetta segir Ármann Fann­ar Magnússon, bóndi á Hrútafelli undir Eyjafjöllum. Hann segir útlitið ekki bjart hvað búskapinn varðar. Gosið sé enn í fullum gangi og hætta á frekari norðanátt, og þar með enn frekara öskufalli.

Ármann er með um 200 fjár og nær 100 nautgripi. Hann getur ekki haft neinar skepnur úti og segir orðið þröngt á fénu, því sauðburður sé langt kominn. Hann kveðst hafa misst tvö lömb sem mögulega hafi farið úr flúoreitrun, svo og tvær kindur. Ein kind til viðbótar sé orðin veik. Hugsanlega hafi aska smogið inn í fjárhúsin með þessum afleiðingum.

„Ég býst við að senda féð í sláturhús í haust. Spurningin er hvort maður fari eitthvert annað með nautgripina. Það er eftir að skoða það mál betur,“ segir Ármann Fannar. Hann segir ekki líta vel út með eðlilega búskaparhætti undir Eyjafjöllum þessa dagana sökum öskufalls. Í fyrradag hafi askan enn einu sinni hvolfst yfir sveitina, þrátt fyrir kyrrt veður.

„Það gerði alveg kolniðamyrkur,“ segir hann og kveðst vita til þess að sumir sveitunga sinna hafi ákveðið að hætta búskap í bili og aðrir hljóti að vera að hugleiða það. Ekkert lát virðist vera á gosinu og ekki séð fyrir um afleiðingar þess. Þegar veðurspár gerðu ráð fyrir því að öskufall bærist vestur á bóginn í gær gerðu margir bændur ráðstafanir til að byrgja fé inni og flytja til hross.

Guðmundur Jón Viðarsson, bóndi að Skálakoti undir Vestur-Eyjafjöllum, var einn af þeim.

„Ég byrgði tæplega 300 kindur og flutti um 130 hross af svæðinu,“ segir hann. „Það er handleggur að koma lambfénu undan þessu en það gekk áfallalaust,“ segir hann og kveður sem betur fer hafa orðið lítið vart við öskufallsstrókinn.

„Óskastaðan er sú að gosið myndi hætta eða þá að breytast úr öskugosi í hraungos,“ segir Guðmundur.

„Hér undir Austur-Eyjafjöllum er heil sveit að leggjast í auðn. Við erum að tala um mjög alvarlega hluti og fólk er orðið langþreytt.“

jss@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×