Tveir menn teknir með tugi kílóa af kannabisplöntum Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. apríl 2010 17:22 Mynd/ Pjetur.
Tveir menn voru handteknir í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í gær vegna gruns um kannabisræktun. Aðdragandi málsins var á þann veg að lögreglu bárust síðdegis á miðvikudag upplýsingar um að frá sumarbústað í Grímsnesi leggði megnan gróðurilm. Lögreglumen frá Selfossi fór að húsinu og leyndi sér ekki að lykt af kannabis barst út frá því. Farið var inn í húsið sem reyndist mannlaust. Þegar inn kom blasti við þakið stofugólf af afklipptum kannabisplöntum sem dreift hafði verið til þerris. Hald var lagt á plönturnar og búnað sem notaður var við þurrkunina. Grunur barst fljótlega að mönnunum tveim sem áttu dvalarstað á höfuðborgarsvæðinu. Leitað var til lögreglumanna í sérsveit Ríkislögreglustjóra til að hafa upp á mönnunum. Eftirgrennslan og leit þeirra bar þann árangur að mennirnir voru handteknir eins og fyrr er getið. Við yfirheyrslur vísaði annar mannanna á stað í Smiðjuhverfi í Kópavogi þar sem ræktunin fór fram. Hald var lagt á plöntur og búnað. Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sá um tæknirannsóknir á ræktunarstaðnum. Annar maðurinn viðurkenndi að hafa átt einn aðild að málinu en hinn hefði einungis lagt til sumarbústaðinn en hann muni ekki hafa vitað um að kannabisplönturnar hefðu verið fluttar þangað. Þá viðurkenndi maðurinn sölu á framleiðslu sinni. Rannsókn málsins er að mestu lokið. Nýtilegur hluti plantnanna vó á milli 30 og 40 kíló, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.
Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Innlent „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Innlent Fleiri fréttir Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Handtekinn eftir röð innbrota Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent