Eddunni frestað fram í febrúar 26. janúar 2010 06:00 Björn er ósáttur við ákvörðun Sjónvarpsins um hætta við að sýna frá Eddu-verðlaunahátíðinni.fréttablaðið/vilhelm
Eddu-verðlaunahátíðinni sem átti að halda í lok janúar hefur verið frestað fram í febrúar. Ástæðan er ákvörðun Sjónvarpsins um að hætta við að sýna beint frá henni vegna niðurskurðar. „Við erum búin að vera þarna í tíu ár þannig að þetta kom aðeins á óvart, því er ekki að neita,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson, formaður ÍKSA, íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, um ákvörðun RÚV. „Við heyrðum það í fjölmiðlum, raunar frá Páli Magnússyni, að RÚV ætlaði ekki að sýna frá henni. Við vorum ekki búnir að heyra af því áður, en við vissum að það yrði einhver niðurskurður í gangi og þarna fengum við svarið.“ Ákvörðun RÚV kemur á sama tíma og sjaldan ef ekki aldrei hefur verið meira af kvikmyndum og leiknu sjónvarpsefni í boði hérlendis. „En það er eitt af því sem mun breytast ef stefna yfirvalda í málefnum kvikmyndasjóða annars vegar og stefna stjórnenda RÚV hins vegar gengur fram eins og horfir. Sá skaði er ekki kominn fram. Það eru tvö til þrjú ár í að við sjáum hann,“ segir Björn. Hann bætir við að Eddu-hátíðin sé ekki dýr fyrir Sjónvarpið og njóti sömuleiðis mikilla vinsælda. Í ljósi þess sé ákvörðunin um niðurskurðinn undarleg. „Þarna koma fram tugir leikarar og skemmtikraftar af ýmsu tagi og Sjónvarpið borgar þessu fólki ekki neitt fyrir að koma fram. Þannig að Sjónvarpið er að fá ansi mikið og áhorfið er geysilega gott á þetta, eða í kringum 50 til 60 prósent. Í fyrra styttum við prógrammið og gerðum það straumlínulagaðra og áhorfið hækkaði töluvert á milli ára,“ segir hann. „Það er áhugi hjá þjóðinni á efninu en það eru ekki allir eins áhugasamir og þjóðin um íslenska kvikmyndagerð, því miður.“ Á næstu dögum verður tilkynnt nákvæmlega hvenær og hvar Eddan verður haldin, en líklega verður hún í Háskólabíói eins og í fyrra. -fb
Mest lesið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Synir Britney gengu tískupallinn í París Tíska og hönnun Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Lífið Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Lífið Fleiri fréttir Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Sjá meira
Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Lífið
Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Lífið