Innlent

Íslendingur handtekinn með kíló af fíkniefnum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
íslenskur karlmaður hefur verið handtekinn Vilinus, höfuðborg Litháen, vegna 1 kilógramms af fíkniefnum, kókaíni og hassi, sem fundust við húsleit. Eftir því sem fram kom í kvöldfréttum RÚV fékk alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra tilkynningu um málið frá yfirvöldum í Litháen í morgun. Haft var eftir Smára Sigurðssyni, yfirmanni alþjóðadeildar, að maðurinn hafi áður komið við sögu lögreglunnar á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×