Ekkert sjúkraflug í Vestmannaeyjum vegna leyfisleysis 2. maí 2010 16:05 Kalla þarf á þyrlu Landhelgisgæslunnar ef það á að flytja alvarlega veika einstaklinga til Reykjavíkur.
Flugvélar Flugfélags Vestmannaeyja sem sinna sjúkraflugi milli lands og eyja hafa ekki haft leyfi til þess að fljúga frá því á föstudag samkvæmt fréttavefnum suður.net. Þar er haft eftir framkvæmdastjóra Flugfélags Vestmannaeyja, Valgeir Arnórssyni, að Flugmálastjórn sé að skoða umbeðin gögn og vonar að hægt verði að byrja að fljúga aftur á morgun. Vísir greindi frá því í gær að kalla þurfti þyrlu Landhelgisgæslunnar út til þess að sækja alvarlega veikan mann aðfaranótt laugardags. Þyrlan þurfti að sækja manninn þar sem báðar sjúkraflugvélarnar í Vestmannaeyjum máttu ekki fljúga. Valgeir sagði í samtali við Suður.net að félagið hafi á fimmtudag sent inn gögn sem Flugmálastjórn óskaði eftir. Þar sem ekki hafi tekist að ljúka málinu á föstudag hafi félagið ekki heimild til að fljúga. Valgeir vonar að málið verði skoðað áfram hjá Flugmálastjórn á morgun svo að lausn fáist. Vísir ræddi við Elliða Vignisson, bæjarstjóra Vestmannaeyja í gærkvöldi en þar sagði hann að það væri algjörlega óviðunandi að það væri ekkert sjúkraflug í Vestmannaeyjum. Bærinn kemur ekki að samningi flugfélagsins um sjúkraflugið. „Við leggjum ríka áherslu á að það sé alltaf sjúkraflugvélar. Bæði er atvinnulífið þannig uppbyggt, sjómennska er hættulegt starf, og svo er mikið af fólki hér á eyjunni í stuttan tíma fyrir tilstilli ferðaþjónustunnar," segir Elliði sem telur það óviðunandi að svona lagað gerist. Hér er hægt að lesa greinina á vef suður.net.
Tengdar fréttir Engar sjúkraflugvélar í Vestmannaeyjum óviðunandi ástand „Þetta er algjörlega óviðunandi ástand,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, en Landhelgisgæslan þurfti að senda þyrlu á eftir veikum manni í eyjum í nótt. Ástæðan var sú að báðar sjúkraflutningavélarnar sem eru staddar í Vestmannaeyjum eru óstarfhæfar yfir helgina. 1. maí 2010 20:00 Mest lesið Ótrúlegur árekstur: „Ég sá bara dekk og púströr“ Innlent Trump-liðar heita hefndum Erlent Ríkið situr á þúsundum hektara af framræstu votlendi Innlent Yfirlæknir gagnrýnir auglýsingu gegn lyfi við RS-veiru Innlent Skýrt að Ísland sé ekki griðastaður stríðsglæpamanna Innlent Sagði frá fyrirætlunum sínum í SMS-i fyrir morðið Erlent „Ég mun ekki sjá eftir honum“ Innlent Trump höfðar 15 milljarða dala mál gegn New York Times Erlent Vonar að fólk taki ekki mark á auglýsingum þar sem farið er með rangindi Innlent Frumvarp um afnám laga um orlof húsmæðra lagt fram í tíunda sinn Innlent Fleiri fréttir Rændi bíl í Veiðivötnum og ók undir áhrifum af vettvangi Vonar að fólk taki ekki mark á auglýsingum þar sem farið er með rangindi Ótrúlegur árekstur: „Ég sá bara dekk og púströr“ Merki um að gjá í samfélaginu sé að stækka Skýrt að Ísland sé ekki griðastaður stríðsglæpamanna Stjórnvöld ætli að hafa yfirhöndina gagnvart skipulögðum glæpahópum Ísraelar sakaðir um þjóðarmorð og dómsmálaráðherra styður lögregluna í aðgerðum gegn Hells Angels Lokun Sorpu á Dalvegi enn frestað Munu áfram stýra fastanefndunum Fá að halda framkvæmdum áfram í bili Eldur í geymslu í blokk á Selfossi Yfirlæknir gagnrýnir auglýsingu gegn lyfi við RS-veiru Flestir sem skráðu sig í Skorradalshrepp fá að kjósa Frumvarp um afnám laga um orlof húsmæðra lagt fram í tíunda sinn Ríkið situr á þúsundum hektara af framræstu votlendi Sló töskunni í vélarhlíf lögreglubifreiðar „Þetta var vissulega ekki í starfslýsingunni“ Hefur ekki áhyggjur af svindli með nýju námsmati Þrjú innbrot og alltaf fúlsað við verkunum: „Þetta er kannski smá yfirlýsing“ Ísland ekki óhult ef til átaka kemur í Evrópu „Ég mun ekki sjá eftir honum“ Fjöldi glæpahópa á Íslandi hefur tvöfaldast á tíu árum „Ekki algengt að svona lekar verði“ Stóraukning skipulagðrar glæpastarfsemi og innbrotahrina hjá listamanni Flugvél með fjórum innanborðs fór út af flugbraut Kallar eftir náðun Kouranis og brottvísun strax á morgun Tiltekt ríkisstjórnar eins og að taka sokk af gólfi unglings Ingvar aftur kominn í leyfi frá þingstörfum Oddvitarnir ætla sér stóra hluti eftir átta mánuði Loka fyrir heitt vatn vegna leka á Bústaðavegi Sjá meira
Engar sjúkraflugvélar í Vestmannaeyjum óviðunandi ástand „Þetta er algjörlega óviðunandi ástand,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, en Landhelgisgæslan þurfti að senda þyrlu á eftir veikum manni í eyjum í nótt. Ástæðan var sú að báðar sjúkraflutningavélarnar sem eru staddar í Vestmannaeyjum eru óstarfhæfar yfir helgina. 1. maí 2010 20:00
Ísraelar sakaðir um þjóðarmorð og dómsmálaráðherra styður lögregluna í aðgerðum gegn Hells Angels