Milljóna afgangur af fjárframlögum til tannlækna 14. ágúst 2010 05:00 Fjárframlög til tannlækninga hafa ekki nýst undanfarin ár og var afgangur af þeim tæpar 800 milljónir á síðustu níu árum. fréttablaðið/vilhelm
Tæplega þrjú hundruð milljóna afgangur var af fjárframlögum til tannlækninga á síðasta ári. Árin 2001 til 2009 var afgangurinn 784 milljónir króna. Fjárframlög til tannlækninga voru rúmar 1.666 milljónir króna og er því tæplega 20 prósenta afgangur. Formaður Tannlæknafélags Íslands, Sigurður Benediktsson, gagnrýnir þetta harðlega, meðal annars í grein í Fréttablaðinu í dag. „Ráðherra setur ráðherragjaldskrá sem segir til um hvað mikið er endurgreitt frá ríkinu. Gjaldskrá tannlækna er síðan frjáls og greiðir sjúklingurinn mismuninn,“ segir Sigurður. Gjaldskrá ráðherra hefur ekki verið hækkuð í mörg ár, en verðlag hefur breyst mikið. Þetta leiðir til þess að sjúklingar þurfa sífellt að borga hærri hlut, að sögn Sigurðar. Sigurður bendir á það í grein sinni að íslensk börn séu með tvöfalt fleiri tannskemmdir en börn í nágrannalöndunum, samkvæmt rannsóknum. Hann segir að ef afgangur fjárveitinga síðustu níu ára, 800 milljónir, hefði nýst í tannvernd barna hefði mátt laga tæpar 55 þúsund tennur. Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra segir að gjaldskráin sé vissulega gömul og úrelt. „Ég er að ganga frá uppfærðri reglugerð á grunni sjúkratryggingalaganna um tannlækningar almennt og ég á nú ekki von á því að geta hækkað gjaldskrána frekar en annað eins og ríkisfjármálunum er háttað,“ segir hún. Hún segir vera um forgangsröðun að ræða. „Þessi afgangur sem Sigurður vísar til er forsendan fyrir því að ég setti reglugerð um tannlækningar og tannréttingar þeirra sem fæðast með alvarlega galla í munnholi, skarð í góm og tannleysi. Þess vegna þurfti engar aukafjárveitingar þar heldur er ég að nýta þær fjárveitingar sem Alþingi hefur sett í tannlækningar til þess að rétta hlut þessa hóps.“ Sigurður segist ánægður með bót á málefnum þessa hóps. Hann segir jafnframt allt stefna í að afgangur verði af fjárframlögunum á þessu ári og Sigtryggur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, gerir einnig ráð fyrir því. Álfheiður á ekki von á því. „Ég á von á því að það nýtist allt það fé sem Alþingi setti í tannlækningar vegna þess að það er búið að bæta stöðu þessa hóps verulega. Þetta er forgangsröðunin sem ég valdi.“ thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Fleiri fréttir „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Sjá meira