Innlent

Konan fannst látin

Konan sem leitað hefur verið að í Borgarnesi síðan á mánudag er látin. Lík hennar fannst um tíu kílómetra frá Borgarnesi í gærkvöldi.

Leit að Urike Kimpfler, 46 ára þýsk kona búsett í Borgarnesi, hefur verið hætt. Lík hennar fannst í gærkvöldi í fjöru í Belgsholtsnesi skammt frá Narfastaðaósi í Hvalfjarðarsveit, um tíu kílómetra suðvestur frá Borgarnesi. Það voru menn á báti frá björgunarsveitinni Brák sem fundu líkið eftir að lögregla hafði ákveðið að stækka leitarsvæðið seinni partinn í gær.

Ulrike hafði verið saknað síðan á mánudag, en hún fór fótgangandi af heimili sínu og skildi farsíma sinn eftir. Það voru samstarfskonur hennar sem tilkynntu um hvarfið á miðvikudag, en sambýlismaður hennar, sem er íslenskur, var utanbæjar. Þá þegar hófst eftirgrennslan lögreglu og skipuleg leit í Borgarnesi og nærliggjandi svæðum daginn eftir. Leit hefur staðið yfir síðan þá, en þegar mest var tóku um 150 björgunarsveitarmenn þátt í leitinni.

Lögregla skilar þakklæti til björgunarsveitarmanna og annarra sem að leitinni komu. Venju samkvæmt fer fram réttarfarskrufning á líki konunnar til að skera úr um hvort dauðdagann hafi borið að með saknæmum hætti, en að því loknu verður tekin ákvörðun um frekari rannsókn málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×