Þögguðu niður í króatísku stuðningsmönnunum 28. janúar 2010 04:00 Gullhópurinn Strákarnir níu eru allir frá Grundarfirði, eru þar sjómenn en láta hættur hafsins bíða um sinn, enda ætla þeir að styðja íslenska landsliðið í handbolta alla leið í úrslitaleikinn. Fréttablaðið/EÁS
Þó svo að stuðningsmannahópur íslenska landsliðsins í handbolta sé ekki fjölmennur lætur hann vel í sér heyra á áhorfendapöllunum á leikjum liðsins á Evrópumeistaramótinu í Austurríki. Fréttablaðið hitti á galvaskan hóp sjómanna skömmu fyrir leik Íslands og Rússlands á þriðjudaginn hér í Stadthalle í Vínarborg. „Við heitum Gullhópurinn,“ segir Hlynur Sigurðsson stoltur. „Við erum allir sjómenn úr Grundarfirði,“ bætir hann við. Strákarnir eru níu talsins og létu vel í sér heyra gegn Rússunum á þriðjudaginn sem höfðu skiljanlega afar hægt um sig á pöllunum. Enda var liðið kaffært af íslensku strákunum strax á upphafsmínútum leiksins. Gullhópurinn er með sína eigin söngva eins og alvöru stuðningsmönnum sæmir og tilkynna viðstöddum reglulega á meðan leik stendur að þarna séu sannir víkingar á ferð. Gullhópurinn kom til Vínar á sunnudaginn og voru því fegnir að íslenska liðið hafði komið sér í góða stöðu í mótinu með sigri á Dönum í lokaumferð riðlakeppninnar í Linz. Þeir voru þó löngu búnir að ákveða að láta verða af ferðinni. „Við ákváðum að fara í þessa ferð í september síðastliðnum og fengum þessa góðu búninga í Henson,“ sagði Hlynur en Íslendingarnir voru auðvitað klæddir í fánalitina frá toppi til táar. En þótt það hafi verið lítið mál að styðja liðið gegn Rússlandi var leikurinn gegn Króötum spennandi frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. „Króatarnir voru mjög fjölmennir og létu vel í sér heyra,“ sagði Hlynur. „Um leið og þeir mættu einhverri mótspyrnu héldu þeir bara kjafti. Þeir byrjuðu ekki hvetja aftur fyrr en þeir skoruðu og komust aftur inn í leikinn. Við munum hins vegar styðja strákana alltaf jafn mikið, sama hvernig gengur,“ segir Hlynur en það má búast við mikilli víkingarimmu á pöllunum í dag þegar þeir íslensku mæta þeim norsku en í húfi er sæti í undanúrslitum mótsins. Hópurinn hefur augljóslega tröllatrú á „strákunum okkar“ því þeir hafa þegar ákveðið að vera í Vín fram yfir úrslitaleik keppninnar.Handvissir um að Ísland verði annað liðið í þeim leik. „Það er ekki spurning - enda erum við Gullhópurinn!“ eirikur@frettabladid.is
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Sjá meira