Gagnrýna seinagang við vinnu fjárhagsáætlunar Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. ágúst 2010 21:24 Borgarráð kemur saman til fundar vikulega. mynd/ GVA.
Það er afar nauðsynlegt að borgarstjórn fari að einbeita sér að brýnum verkefnum Reykjavíkurborgar, segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. Í bókun sem Sjálfstæðisflokkurinn og VG lögðu fram í borgarstjórn í dag segir að nú þegar tveir mánuðir séu liðnir frá því að nýr meirihluti tók við í Reykjavík hafi borgarráð ekki enn fengið neinar upplýsingar um vinnu við gerð fjárhagsáætlunar komandi árs. Óskaði minnihlutinn í borgarráði því eftir að málið yrði sett á dagskrá næsta fundar borgarráðs. „Síðastliðin misseri hefur það verið þannig hjá Reykjavíkurborg að við höfum verið að vakta fjármálin og fjárhagsáætlun í viku hverri. Við höfum áhyggjur af því að, miðað við það hversu hægt þessari vinnu hefur miðað frá því ný borgarstjórn tók við að nú þurfi menn að fara að bretta upp ermar og takast af alvöru á við brýnustu verkefni borgarinnar," segir Hanna Birna. „Eins og við bendum á í þessari bókun hefur ekki verið haldinn fundur í aðgerðahópi borgarráðs, auk þess sem ekkert fagráð hefur fundað um fjárhagsáætlunina en sú vinna átti að hefjast í byrjun júní," segir Hanna Birna. Hún segir að ekki sé komin nein forgangsröðun eða stefnumótun þessara mála. „Okkur finnst að þessi brýnu mál sem lúti að því að tryggja íbúum góða þjónustu og tryggja fjármál borgarinnar þoli enga bið lengur," segir Hanna Birna. Mikið verk framundan Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, segir að meirihlutinn hafi látið vita af því um miðjan júli að tekjustofnar myndu ekki skýrast fyrr en eftir verslunarmannahelgi. Hann bendir jafnframt á að ný þjóðhagsspá sé væntanleg frá Seðlabanka Íslands í næstu viku. Með því ættu ytri aðstæður að skýrast. „En auðvitað er mikið verk framundan og ég vona að þetta beri vott um að allir séu tilbúnir í bátana að leggjast yfir þau álitamál sem eru í fjármálunum," segir Dagur. Fasteignamat á mestöllu íbúðarhúsnæði lækkaði í sumar en ekki liggur fyrir hvort sú lækkun muni skila sér í lægri fasteignagjöldum. „Það er eitt af því sem verður að ákveða í tengslum við fjárhagáætlunina í haust. Það hlýtur að skipta máli hver heildartekjuþróunin er og hvernig hægt verður að ná hagræðingu. Vegna þess að það er alveg ljóst að Reykjavíkurborg mun hafa úr eitthvað minnu að spila á næsta ári en þessu," segir Dagur.
Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Sjá meira