Ísland er barn-fjandsamlegt samfélag 24. maí 2010 11:15 „
Aðaldánarorsök barna á Íslandi eru slys," segir Herdís Storgaard, forstöðumaður Forvarnarhússins, en alþjóðleg rannsókn var kynnt á dögunum þar sem í ljós kom að Ísland er með lægstu dánartíðni barna undir fimm ára í hinum vestræna heimi. Bretar eru hinsvegar á botninum. Herdís segir þennan árangur meðal annars að þakka öflugu átaki gegn slysum svo sem í sundlaugum. Banaslysum í laugum á Íslandi hefur fækkað um 55 prósent á tuttugu árum að sögn Herdísar. „Árið 1994 uppgötuðum við fyrir tilstilli foreldri sem átti barn sem drukknaði næstum því í skólasundi, að vandamálið væri talsvert," segir Herdís en hún ásamt vísindamönnum komust að því að slysatíðni barna í sundi undir fjórtán ára aldri var gríðarlega há. Þá var einnig áberandi að börn undir 4 ára voru að drukkna í grunnu vatn, jafnvel í pollum. Herdís segir að það hafi verið farið í mikið átak til þess að fræða foreldra um hættuna og svo auka öryggi í sundlaugum. Árangurinn er augljós; banaslysum hefur fækkað um rúman helming vegna drukknunar. En Herdís er ekki fyllilega sátt. Hún segir slysahættuna víða og gagnrýnir meðal annars aðbúnað barna í bílum. „Það er vel búið að yngstu börnunum. En það er annað mál með börn sem eru orðin fimm ára gömul og eldri," segir Herdís sem telur aðbúnað þessara barna í bílum vera talsvert áhyggjuefni. Hún segir marga foreldra leyfa börnunum að sitja á sessum án baks en að sögn Herdísar þá hafa rannsóknir leitt í ljós að sessurnar hjálpa lítið sem ekkert einar og sér. „Í hörðum árekstrum skutluðust sessurnar undan börnunum og börnin hlutu mikla áverka eftir bílbeltin," segir Herdís. Þá segir hún að það sé alvarlegt mál ef börn sitja í framsætinu hjá ökumanninum. Hún segist skilja að foreldrar láti þetta eftir börnunum sínum en bendir á að þetta sé ekki eingöngu hættulegt, þetta sé lífshættulegt fyrir barnið lendi ökumaður í bílslysi. Herdís segir foreldra ekki nógu meðvitað um þær slysahættur sem finna má í umhverfinu. Hún bendir á að foreldrar telji börnin sín hafa meira hyggjuvit en raun ber vitni þegar þeim er leyft að leika sér eftirlitslaus, til að mynda í kringum ár og umferðargötur. Hún segir að það þurfi alltaf að fylgjast með minni börnunum, og þá skiptir engu hversu vön þau eru umhverfinu: „Börn geta tekið upp á ólíklegustu hlutum þrátt fyrir að þau gjörþekkja umhverfið sitt." Herdís vill meina að viðmót foreldra gagnvart útivist barna sé of kærulaust og slíkt leiði allt of oft til óhappa. „Það er leitt að segja það en manni finnst eins og Ísland sé barn-fjandsamlegt land. Það er eins og öryggi barnanna sé allt of neðarlega í forgangsröðinni," segir Herdís sem þykir of kæruleysislegt viðmót gagnvart börnum sem leika sér til að mynda úti. Hún segir þróunina hinsvegar ágæta. Að hennar mati mættu foreldrar samt sækja sér meiri fræðslu um slysahætturnar sem er stærsta váin sem sækir að ungum börnum hér á landi. „Það er því miður ekki hægt að bólusetja börn fyrir slysum," segir Herdís að lokum. Hægt er að nálgast fróðlegar upplýsingar um öryggi barna á heimasíðu Forvarnarhússins sem er á vegum Sjóvár.
Tengdar fréttir Dánartíðni barna á Íslandi lægst - Bretar á botninum Ísland er með lægstu dánartíðni barna yngri en fimm ára í heiminum en á eftir fylgja Svíar og svo Kýpur. Rannsóknin var framkvæmd af Washington-háskóla í Bandaríkjunum og birt í tímaritinu Lancet. 24. maí 2010 09:28 Mest lesið Hótar að beita stríðsmálaráðuneytinu: „Chipocalypse Now“ Erlent Ákærðir vegna fölsuðu taflanna tuttugu þúsund Innlent Ákærðir fyrir hópnauðgun gegn ólögráða stúlku Innlent „Vona bara að hún grípi til raunverulegra aðgerða sem bíta“ Innlent Veltir fyrir sér hvort íslensk íþróttafélög verði af milljörðum Innlent „Eins og að fá hnefahögg í andlitið“ Innlent Kennir íslensku en fær ekki ríkisborgararétt að óbreyttu Innlent Korn ræktað á um fjögur þúsund hekturum Innlent Ástand á stúdentagörðum: Ítrekuð innbrot, mat stolið, dýnur í kjallara og hland á gólfi Innlent Gríðarlegur fjöldi á mótmælunum Þjóð gegn þjóðarmorði Innlent Fleiri fréttir Ákærðir vegna fölsuðu taflanna tuttugu þúsund „Vona bara að hún grípi til raunverulegra aðgerða sem bíta“ Korn ræktað á um fjögur þúsund hekturum Veltir fyrir sér hvort íslensk íþróttafélög verði af milljörðum Handtekinn undir áhrifum með tvö börn í bílnum Fjölmenn mótmæli og skortur á íslenskukunnáttu þrátt fyrir doktorsnám Ákærðir fyrir hópnauðgun gegn ólögráða stúlku Gullkistan opnuð á Vestfjörðum Sóttu slasaðan ökumann við Surtshelli Gríðarlegur fjöldi á mótmælunum Þjóð gegn þjóðarmorði Tæpir sextíu þúsund fermetrar í eigu ríkisins standa tómir Kennir íslensku en fær ekki ríkisborgararétt að óbreyttu Tvöföldun erlendra fanga á fimm árum: „Þetta er auðvitað gríðarlega hátt hlutfall“ Nöfn myrtra barna verða lesin upp í sjö klukkustundir Eygir vonarneista í fyrsta sinn í marga mánuði Eygir vonarneista í fyrsta sinn og mótmæli um allt land Segir dregið úr veiðum á grundvelli „Walt Disneylíffræði“ Árborg girnist svæði Flóahrepps Sendu kæligáma til Úkraínu Langflestir lögreglumenn á Suðurnesjum Brunarústirnar fjarlægðar tveimur árum eftir brunann Íbúar mótmæla og vilja börn frekar en byggingu í Gunnarsbrekku Reyndi að stinga lögreglu af á buggy Bílvelta í Kömbunum „Eins og að fá hnefahögg í andlitið“ Sveitarstjórn reyni að skrá íbúa úr sveitarfélaginu og ógni grundvallarréttindum Skoða að efla geðheilbrigðisþjónustu á Austurlandi eftir röð áfalla Kjölur ekki á dagskrá Lögregla kölluð til eftir að bremsuvírar voru klipptir á reiðhjólum barna Fólk deili lyfseðlum og „míkródósi“: „Við getum ekki réttlætt þá meðferð“ Sjá meira
Dánartíðni barna á Íslandi lægst - Bretar á botninum Ísland er með lægstu dánartíðni barna yngri en fimm ára í heiminum en á eftir fylgja Svíar og svo Kýpur. Rannsóknin var framkvæmd af Washington-háskóla í Bandaríkjunum og birt í tímaritinu Lancet. 24. maí 2010 09:28