Yfir þrjú þúsund án vinnu í meira en ár 29. júlí 2010 08:00 Hér má sjá ungmenni tína rusl í landi Garðabæjar einn góðviðrisdaginn í byrjun júní á þessu ári. Stjórnvöld hafa beitt sértækum aðgerðum til að fást við atvinnuleysi meðal ungs fólks. Fréttablaðið/ Vilhelm
Gangi spár eftir mun atvinnuleysi í ágúst og september verða minna en í sumar, eða í kringum 7 prósent. Í október eru þó líkur á að fjölga muni á ný á atvinnuleysisskrá. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir reynsluna sýna að atvinnulausum fækki fram í október. Líkur séu á að reyndin verði einnig sú í ár. Átaksverkefni fyrir námsmenn og í viðhaldi hafi gengið vel og fækkað atvinnulausum. „Það tókst að ráða námsmenn að stærstum hluta, í kringum 94 prósent. Við höfum möguleika á að teygja verkefnið fram á sumarið og veita atvinnuleitendum þannig svigrúm,“ segir Gissur, en verkefnið gerði ráð fyrir tveggja mánaða vinnu. Þá segir Gissur að iðnaðarmönnum hafi fækkað mjög á atvinnuleysisskrá, sem sé raunin á sumrin. Sérstakt átak í viðhaldsverkefnum hafi enn frekar ýtt undir viðhaldsvinnu. Hann býst við 7 prósenta atvinnuleysi í ágúst. „Það er náttúrulega hræðilega mikið, en við erum tiltölulega bjartsýn.“ Á fjórða þúsund manns hafa verið án atvinnu í tólf mánuði eða meira. Gissur segir að sérstöku virkniúrræði verði ýtt úr vör fyrir þann hóp í næstu viku, ekki ósvipað því sem gert var fyrir ungt fólk í janúar. Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra segir atvinnuleysi minnka yfir sumartímann, en líkur standi til að það verði einhverju minna í vetur en í fyrra. Það sé hins vegar ekki búist við umtalsvert minna atvinnuleysi yfir vetrartímann fyrr en veturinn 2011 til 2012. Árni Páll segir áhyggjur um alla Evrópu snúa að því að örðugra verði að komast í lánsfé á næstu árum og því verði endurreisn efnahagslífsins erfiðari en ella. „Bæði er minna handbært fé á lánamörkuðum og eins hafa bankar farið mun varlegar í kjölfar mikils taps. Það getur því verið að fyrirtæki muni eiga í erfiðleikum með að búa til ný störf.“ Hann telur að íslenska bankakerfið sem verið sé að koma á fót, verði þó vel í stakk búið til lánastarfsemi. „Vonandi tekst okkur að hreinsa skuldsetninguna út og standa eftir með heilbrigðara bankakerfi.“ - kóp
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira