Innlent

Lögreglan með umfangsmikið eftirlit um helgina

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður með viðamikið eftirlit um verslunarmannahelgina eins og jafnan áður. Áhersla hefur verið á eftirlit með ferðavögnum/eftirvögnum og skráningu og skráningarmerkjum ökutækja. Slíkt eftirlit hefur verið mjög virkt hjá lögreglu síðustu vikur og hafa fjölmörg ökutæki verið stöðvuð og skoðuð á þjóðvegum í umdæminu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni hafa þessar athuganir leitt í ljós að í flestum tilvikum virðast ferðalangar huga vel að ástandi ferðavagna og ökutækja og passa að fyllsta öryggis sé gætt, þótt í einhverjum tilfellum hafi þurft að gera úrbætur.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun einnig fylgjast með íbúðarhúsnæði um verslunarmannahelgina eins og kostur er. Lögreglan vill jafnframt hvetja fólk, sem heldur burt af höfuðborgarsvæðinu í lengri eða skemmri tíma, til að ganga tryggilega frá heimilum sínum. Gott ráð er biðja nágranna um að líta eftir húsnæði. Fá þá til að kveikja ljós, fjarlægja póst, leggja í bílastæði og svo framvegis. Sömuleiðis er minnt á mikilvægi þess að verðmæti séu ekki skilin eftir í augsýn en þjófar sækjast meðal annars eftir fartölvum, myndavélum og fleiru slíku.

Lögreglan hvetur líka fólk til að láta vita um grunsamlegar mannaferðir. Það getur oft skipt miklu máli að fá lýsingu á mönnum og bifreiðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×