Íslensk kona syngur hlutverk Hans Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. júlí 2010 13:06 Dóra syngur hlutverk Hans í óperunni. Mynd/ fridphoto.com
Íslensk mezzosópran, Dóra Ármannsdóttir, syngur eitt aðalhlutverkið í uppfærslu á óperunni Hans og Grétu sem verður frumsýnt á vegum Pacific Opera í Sidney í Ástralíu á morgun. Dóra segir að alls verði fjórar sýningar á sívinsælu verki Engelbert Humperdinck. „Þetta er náttúrlega bara ævintýrið um Hans og Grétu sem flestir þekkja. Nema hvað þetta er skrifað á þýsku og við syngjum þetta á ensku," segir Dóra. Hún segir að um mikilvægt tækifæri sé að ræða fyrir sig enda sé leikhúsið góður stökkpallur fyrir unga söngvara sem séu að sækjast eftir reynslu. Dóra er búin að vera í tæpt ár í Ástralíu með sambýlismanni sínum, en þau búa í úthverfi Sidney. Hún segir aðdragandann að því að þau fluttu út hafa verið þann að manninum sínum hafi boðist starf þar ytra og hún ákveðið að fylgja honum. „Ég vissi svo sem ekkert hvað beið mín hér en ákvað bara að þetta yrði gott," segir Dóra. Það hafi líka komið á daginn því lífið sé frábært í Sidney. „Þetta er náttúrlega bara allt á hvolfi hérna," segir Dóra og bendir á að nú þegar hásumar sé á Íslandi sé miður vetur hjá sér. „En ég get ekki sagt að þetta sé mjög harður vetur," segir Dóra og bendir á að hitinn geti farið niður í 8 gráður. Það geti hins vegar verið býsna kalt inni í húsunum því þau séu mörg hver illa einangruð. Hún segir að það verði síðan heitt í kringum jólin. „Aðeins of heitt fyrir minn smekk," segir Dóra sem bendir á að hitinn geti farið allt upp í 35 gráður í desember.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Fleiri fréttir „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Sjá meira