Óttaðist um önnur vatnsréttindi 29. júlí 2010 18:58
Ísland sat hjá þegar Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gærkvöld að aðgangur að hreinu vatni skyldi teljast til mannréttinda. Utanríkisráðuneytið óttast að þetta grafi undan öðru samkomulagi um vantsréttindi. Þingmaður vill að fulltrúi Íslands hjá Sameinuðu Þjóðunum og utanríksimálaráðherra skýri málið. Hátt í níu hundruð milljónir manna hafa ekki aðgang að hreinu drykkjarvatni og tveir komma sex milljarðar manna búa við enga eða óviðundandi hreinlætisaðstöðu, það er nálægt helmingi jarðarbúa. Þá hefur komið fram að ein og hálf milljón barna deyr fyrir fimm ára afmælið á hverju ári, vegna þessa. Fleiri börn falla í valinn af þessum sökum en deyja samanlagt úr Alnæmi, malaríu og mislingum, sagði fulltrúi Bólivíu. 122 ríki samþykktu á Allsherjarþingi sameinuðu þjóðanna í gær tillögu um að aðgangur að hreinu vatni verði talinn til mannréttinda. Enginn greiddi atkvæði gegn tillögunni, en fjörutíu og eitt ríki sat hjá. Ísland var í þessum hópi og raunar Danir og Svíar einnig. Fréttastofan innti utanríkisráðuneytið um skýringar á þessu. Í svari ráðuneytisins segir að Ísland, hafi ásamt sextán ríkjum Evrópusambandsins ákveðið að sitja hjá þar sem tillagan sem samþykkt var, geti grafið undan samkomulagi um vatnsréttindi sem Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna vinni nú að. Þessi tillaga eigi þess vegna heima hjá Mannréttindaráðinu. Fulltrúar Norðmanna og Finna, auk raunar stórra Evrópusambandsríkja eins og Þýskalands, Frakklands og Ítalíu, greiddu hins vegar atkvæði með ályktuninni og virðast því ljóslega telja að þessi tillaga standi öðrum ekki fyrir þrifum. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður hreyfingarinnar, vill að fastafulltrúi íslands hjá Sameinuðu þjóðunum og utanríkisráðherra, komi fyrir utanríkismálanefnd og skýri málið.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira