Fundu bæjarstjóra milli auglýsinga 31. júlí 2010 04:00 Ásthildur Sturludóttir
Enginn þeirra 23 sem sóttu um starf bæjarstjóra Vesturbyggðar hefur að sögn Ingimundar Óðins Sverrissonar, forseta bæjarstjórnar, gert athugasemdir við að þeim var öllum hafnað og Ásthildur Sturludóttir, sem ekki sótti um, ráðin. Ingimundur Óðinn segir sex hafa dregið umsókn sína til baka og að enginn hinna sautján hafi fullkomlega uppfyllt kröfur bæjarstjórnarinnar. Öllum umsóknum hafi því verið hafnað og auglýsa átti starfið að nýju. „Þá frétti ég að Ásthildur hefði verið ein umsækjenda sem fóru í gegnum ferli hjá Capacent vegna bæjarstjórastarfsins á Ísafirði. Ég ákvað að kanna það og hún hafði mikinn áhuga á að koma hingað svo við kölluðum hana í viðtal. Ákvörðunin var tekin í kjölfarið,“ útskýrir Ingimundur Óðinn og undirstrikar að Ásthildur hafi ekki komið til tals fyrr en öðrum umsækjendum hafði verið synjað. Hún hafi verið ráðin í samráði við minnihlutann í bæjarstjórn. „Það skiptir miklu máli að fá góða manneskju í þetta. Við erum með ákveðnar kröfur; við óskum eftir að fólk sé með háskólamenntun og að það sé tilbúið til að dveljast hérna. Ásthildur hefur enga reynslu af bæjarstjórastöðu en hefur menntun í þessu og hefur verið verkefnisstjóri yfir stórum verkefnum og séð um fjárhagsáætlanagerð. Það skiptir líka máli að hún hefur gríðarlega góð tengsl við stjórnmál og þekkir marga,“ segir forseti bæjarstjórnar. - gar
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira