Franklin Stiner dæmdur í fangelsi 19. maí 2010 10:24 Franklín Stiner. MYND/GVA
Franklin Stiner var í dag dæmdur í átta mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir vörslu fíkniefna. Hann var ákærður fyrir að hafa í október 2008 haft í fórum sínum rúm 150 grömm af amfetamíni, 32 grömm af kókaíni, lítilræði af hassi og 23 alsælutöflur sem lögregla fann við leit. Tæpu hálfu ári síðar fundu lögreglumenn aftur fíkniefni hjá Franklín, í þetta sinn rúm 22 grömm af amfetamíni 2 alsælutöflur og lítilræði af tóbaksblönduðu kannabis. Efnin fundust á heimili Franklins Stiner, áður Steiner, en hann hefur áður komið við sögu lögreglu vegna fíkniefnamála. Í fyrra tilvikinu framkvæmdi lögreglan húsleit að fengnum úrskurði dómara en í því síðara var leitað á heimili hans eftir að lögreglumenn höfðu heimsótt Stiner vegna upplýsinga um meint fíkniefnamisferli. Sonur hans kom til dyra og samkvæmt lögreglu varð Franklín „mjög flóttalegur". Hann hafi þó heimilað leit á heimili sínu og fundust þá efnin. Einnig var Franklin með skammbyssu sem hann sagði óhlaðna og óvirka. Skotfæri fundust einnig í vasa hans. Franklin sagðist hafa verið að gera byssuna upp þegar lögreglu bar að garði og að hann hafi stungið henni ósjálfrátt á sig. Franklin Stiner var því dæmdur í átta mánaða fangelsi og hafnaði dómari því að skilorðsbinda refsinguna þrátt fyrir að Franklín hafi farið fram á það og vísað til heilsufars. Hann skal einnig greiða allan sakarkostnað, rúmlega eina milljón króna.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Innlent Fleiri fréttir Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Sjá meira