Lögreglan styrkir Stellu Líf 8. september 2010 16:42 Myndin var tekin þegar Bylgja Hrönn Baldursdóttir og Guðmundur Ingi Rúnarsson afhentu Hermanni Páli og Stellu Líf styrkinn. Mynd / logreglan.is „
Ég er afskaplega þakklátur fyrir þennan stuðning en það er ómetanlegt að eiga góða að," segir lögreglumaðurinn Hermann Páll Traustason en samstarfsfélagar hans hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu færðu honum að gjöf 600 þúsund krónur á dögunum samkvæmt frétt sem birtist á heimasíðu lögreglunnar. Styrkurinn er tilkomin vegna veikinda dóttur Hermanns Páls og Hildar Arnars Ólafsdóttur en hún heitir Stella Líf og er 10 mánaða. Fljótlega eftir fæðingu hennar kom í ljós að ekki var allt með felldu. Sú litla hefur þegar orðið að gangast undir eina aðgerð í Boston í Bandaríkjunum og fleiri slíkar eru fyrirsjáanlegar þar vestanhafs. „Þetta tekur auðvitað á en við erum full bjartsýni um að allt muni fara vel," segir lögreglumaðurinn. Að vera með veikt barn tekur á og því er mikilvægt að foreldrarnir þurfi ekki líka að vera með fjárhagsáhyggjur á sama tíma. Styrkurinn frá vinnufélögunum léttir þeim verulega róðurinn og Hermann Páll ítrekar þakklæti sitt og bætir við að Líknar- og hjálparsjóður Landssambands lögreglumanna hafi líka rétt þeim hjálparhönd. Til viðbótar má nefna að slökkviliðsmaðurinn Kristján Henrysson tók þátt Þrekmeistaranum og lét heita á sig til styrkar Stellu Líf. Fyrir það er lögreglumaðurinn sömuleiðis mjög þakklátur. Búist er við að Stella Líf fari næst til Boston innan þriggja mánaða en hér heima er hún undir stöðugu eftirliti. Það eru þrengsli í slagæðum hennar sem orsaka vandann en búið er víkka sex æðar hjá Stellu Líf til að ná niður þrýstingi í hjartahólfunum.
Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Fleiri fréttir Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sjá meira