Stoltur af kjúklingnum 2. febrúar 2010 06:00 Egill og Aron unnu saman að því að styrkja leikmanninn fyrir komandi átök. Árangurinn hefur ekki látið á sér standaFréttablaðið/Stefán
Egill Einarsson hefur verið stoppaður úti á götu, knúsaður og kysstur fyrir framgöngu Arons Pálmarssonar á EM. Egill segir Aron skólabókardæmi um mann sem nær sínum markmiðum. „Ég verð að viðurkenna að kjúklingurinn kom mér á óvart, ég vissi að hann væri góður en kannski ekki alveg svona rosalega góður,“ segir Egill Einarsson einkaþjálfari um skjólstæðing sinn, Aron Pálmarsson. Íslendingar sáu nýja handboltastjörnu fæðast á dúklögðu gólfi Stadthalle í Austurríki þegar hinn nítján ára gamli Hafnfirðingur lék andstæðinga sína á EM grátt og kom þeim í opna skjöldu með línusendingum sínum, undirskotum og uppstökkum. Egill viðurkennir að hann sé að rifna úr stolti yfir „kjúklingnum“ en vill þó ekki alveg kvitta upp á að kjúklingurinn sé orðinn að manni. „Við erum svo nýbyrjaðir að kalla hann kjúklinginn.“ Fréttablaðið greindi frá samstarfi þeirra í desember 2008. Árinu áður, þá sautján ára gamall,hafði Aron skrifað einkaþjálfaranum bréf og lýst hugmyndum sínum um að verða besti leikmaður í heimi. Aron hafði fylgst með framgöngu Egils í fjölmiðlum og leist vel á hann og vildi bara vita hvort Egill væri ekki örugglega rétti maðurinn í starfið. Í kjölfarið tóku þeir til hendinni, fóru í miklar styrktaræfingar og árangurinn lét ekki á sér standa; Aron er nú leikmaður þýska stórliðsins Kiel og leikur þar undir stjórn Alfreðs Gíslasonar. Og er ein af vonarstjörnum íslensk handbolta. Egill segist alltaf hafa haft mikla trú á Aroni, hann sé skólabókardæmi um það að menn geti látið drauma sína rætast. „Fólk vissi að hann væri efnilegur en hversu oft höfum séð efnilega leikmenn kikna undan pressu.“ segir Egill sem hefur hjálpað Aroni með mataræðið að undanförnu og er honum enn innan handar þegar landsliðsmaðurinn og bronshetjan er hér á landi. Einkaþjálfarinn er ekki í vafa um að framtíðin sé björt hjá Aroni og hann er staðráðinn í að vera viðstaddur HM í Svíþjóð á næsta ári. „Maður verður að ná einu stórmóti, það er ekki nokkur spurning.“- freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Hvað veistu um… Titanic? Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Kanónur komu saman í Hveragerði Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira