Innlent

Ók á öðru hundraði á Sæbraut

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan stöðvaði mann sem ók á 128 kílómetra hraða á klukkustund. Mynd/ Pjetur.
Lögreglan stöðvaði mann sem ók á 128 kílómetra hraða á klukkustund. Mynd/ Pjetur.
Karlmaður á þrítugsaldri var staðinn að hraðakstri á Sæbraut í Reykjavík um miðjan dag í gær. Bíll hans mældist á 128 kílómetra hraða á móts við Kirkjusand. Maðurinn var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur viðkomandi áður gerst sekur um umferðarlagabrot.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×