Sérsmíðaðar súlur fyrir Íslandsmótið í súlufitness 8. september 2010 07:00 Hæstu súlur Íslands Sigurvegarinn á Íslandsmótinu í polefitness og dansi hlýtur þátttökurétt á Evrópumótinu sem fram fer á Bretlandi í næsta mánuði. Að sögn Ingu Birnu Dungal eru súlurnar sem stúlkurnar nýta sér fjögurra metra langar en í bakgrunni má sjá Sólveigu Steinunni Pálsdóttur leika listir sínar. Bryndís Schram verður formaður dómnefndar. Fréttablaðið/Pjetur „
Það eru tíu stelpur sem taka þátt. Þær eru búnar að æfa sig í sex mánuði og hafa lítið séð af fjölskyldunni," segir Inga Birna Dungal hjá X-Form en veglegt Íslandsmót í polefitness, þessari vinsælu íþróttagrein, verður haldið á skemmtistaðnum Replay við Grensásveg á laugardaginn. Sigurlaunin eru ekki af verri endanum, þátttökuréttur á Evrópumótinu í polefitness sem fram fer í Bretlandi í næsta mánuði og hugsanlega einnig þátttökuréttur á heimsmeistaramótinu í Sviss. Að sögn Ingu hafa stúlkurnar tíu hannað og látið sérsauma á sig búninga þannig að keppnin verður ákaflega hörð þetta árið. Inga segir að upphaflega hafi átt að halda mótið í nóvember á síðasta ári. En fallið hafi verið frá þeirri hugmynd til að gefa stúlkunum tækifæri til að æfa sig enn betur fyrir keppnina. Fyrirkomulagið er þannig að keppendur fá eitt atriði til að sýna listir sínar og það eru vissar reglur sem þær þurfa að fara eftir. „Það eru tvær súlur á sviðinu, ein föst og ein sem snýst. Þetta eru sérsmíðaðar súlur, fjórir metrar að lengd, og mér er það til efs að svona háar súlur hafi áður verið settar upp á Íslandi," útskýrir Inga en súlurnar eru byggðar samkvæmt alþjóðlegum stöðlum í polefitness. Mikill áhugi hefur verið á pole-fitness hér á landi en þessi tegund af heilsurækt hefur slegið í gegn úti um allan heim. Í dag er hægt að læra þessi fræði á þremur stöðum, Magadanshúsinu, X-Formi og Heilsuakademíunni og koma keppendur frá öllum þessum stöðum. Inga Birna segir að til þess að alls hlutleysis sé gætt hafi hlutlausir dómarar verið fengnir til að skera úr um hver sé best. Formaður dómnefndar verður til að mynda fyrrum sendiherrafrúin Bryn-dís Schram en með henni í dómnefndinni sitja Egill Gillz Einarsson, Erpur Eyvindarson, Hannes Egilsson frá Íslenska dansflokknum, Heiðrún „fitness", Sigrún Lilja Guðjónsdóttir frá tískumerkinu Gyðju og fatahönnuðurinn Sara Forynja. Þá mun Haffi Haff vera kynnir keppninnar og mun hann frumflytja nýtt lag; The Dirty Side. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira