Innlent

Sendi forstjóra OR tilmæli vegna gjaldskrárhækkunar

Mosfellsbær. Mynd úr safni.
Mosfellsbær. Mynd úr safni.

Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkti mótmæli varðandi hækkun Orkuveitu Reykjavíkur á gjaldskrá á bæjarráðsfundi í síðustu viku.

Bæjarráð telur það ekki sanngjarnt að velta erfiðri fjárhagsstöðu OR yfir á heimili, sveitarfélög og fyrirtæki með þeim hætti sem nú er gert.

Bæjarráð Mosfellsbæjar beinir jafnframt þeim eindregnu tilmælum til stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur að hækkunin verði endurskoðuð og annarra leiða leitað til að bregðast við erfiðri fjárhagsstöðu Orkuveitu Reykjavíkur.

Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, hefur sent tilmæli bæjarráðs á forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur og stjórnarformann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×