Sport

Tveir stuðningsmenn Liverpool stungnir í Napólí

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images

Tveir stuðningsmenn Liverpool voru í gærkvöldi lagðir inn á sjúkrahús með stungusár á Napólí á Ítalíu.

Liverpool mætir Napólí í Evrópukeppni UEFA í kvöld og sögðu fulltrúar lögreglu frá Merseyside í Liverpool á Englandi að alls hafði verið ráðist á sex stuðningsmenn liðsins í gærkvöldi.

Tveir þeirra voru stungnir en eru ekki í lífshættu. Sá eldri, 53 ára, verður útskrifaður í dag en hinn verður undir eftirliti lækna eitthvað lengur.

Lögreglan í Napólí sagði að þrír hefðu verið handteknir vegna þessa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×