Hefur fundið lausn á vandamálinu í Belgíu Andri Broddason skrifar 24. júlí 2026 16:31 George Russell var sigurstranglegastur í byrjun tímabils en situr nú í þriðja sæti heimsmeistaramótsins. Mark Sutton/Getty Images George Russell segir að lið hans Mercedes hafi fundið lausnina á því sem lét bílinn hans hökta í belgíska kappakstrinum um síðustu helgi. Hann er staðráðinn í því að geta bætt upp fyrir það í ungverska kappakstrinum um helgina.
George Russell datt úr keppni á fyrsta hring belgíska kappakstursins og datt niður í þriðja sæti heimsmeistaramóts ökumanna í Formúlu 1. Hann var nú þegar búinn að vera á afturfótunum alla helgina þegar hann lenti í samstuði við Lewis Hamilton á fyrsta hring og endaði keppnina sína snemma. Russell vildi meina að ástæðan fyrir bæði slæmu gengi og samstuðinu við Hamilton væri að vélin hans hefði hökt á hraðasta kafla brautarinnar. Í vikunni hefur hann unnið náið með verkfræðingum Mercedes og telur nú að liðið sé búið að leysa vandamálið. Eftir ungverska kappaksturinn um helgina kemur mánaðar sumarfrí og stefnir Russell á að fara í sumarfríið á góðum nótum. Bardaginn við liðsfélaga hans hjá Mercedes, Kimi Antonelli, hefur tekið á andlega fyrir Russell. Í byrjun móts var hann talinn sigurstranglegastur til að verða heimsmeistari en frábær akstur Antonelli hefur sett strik í reikinginn. Einnig hefur Mercedes-bíllinn bilað á óheppilegum tímum og hefur þetta tvennt gert það að verkum að Russell er einungis í þriðja sæti heimsmeistaramótsins. „Tímabilið hefur farið mikið upp og niður. Bæði hlutir sem ég ræð við og ræð ekki við hafa ekki fallið mér í hag og hægt á framförum mínum og bílsins,“ sagði George Russell í viðtali við Sky Sports. Mikil barátta er í efstu þrem sætunum og enn er fullt af stigum í pottinum þar sem tímabilið er aðeins að verða hálfnað. Kimi Antonelli situr í efsta sæti mótsins en 45 stigum fyrir aftan hann er Lewis Hamilton. Þar á eftir í þriðja sætinu situr George Russell en aðeins fimm stig skilja þá að. Það munar því aðeins 50 stigum á fyrsta og þriðja sæti en fyrir að vinna kappakstur fær maður 25 stig.
Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Fótbolti Fleiri fréttir Hamilton getur bætt met Schumacher þegar Ferrari heiðrar hann Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Lando Norris stofnar sitt eigið lið Hadjar frá í aðra keppni Norris langar ekki að vinna með öðrum liðum og framlengir við McLaren Ferrari heiðrar Schumacher á heimavelli Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Norris náði öðrum sigri Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Norris náði ráspólnum aftur Russell vann sprettinn í þriðja sinn Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina „Ég var nær því að hætta heldur en að skipta um lið“ Verstappen skrifaði undir nýjan samning Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Rússar og Belarússar fá að keppa aftur Nýliðarnir skipta um liðsstjóra Ætlar að blanda sér í baráttuna við Ferrari og Mercedes Fór á skeljarnar í sumarfríinu Ökumaður Formúlu 1 vann sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti á miðju tímabili Sjá meira