Lokatónleikar Jónsa í Höllinni 21. september 2010 06:00 Jónsi lýkur heimstónleikaferðalagi sínu á Íslandi í Laugardalshöllinni 29. desember. fréttablaðið/gva
Tónlistarmaðurinn Jón Þór Birgisson, eða Jónsi úr Sigur Rós, lýkur heimstónleikaferðalagi sínu á Íslandi í Laugardalshöllinni 29. desember. Í byrjun apríl gaf Jónsi út sína fyrstu sólóplötu, Go, sem hefur hlotið lof gagnrýnenda um allan heim. Í kjölfar útgáfu plötunnar lagði Jónsi af stað í metnaðarfulla tónleikaferð um heiminn sem stendur enn yfir. Áður en Jónsi stígur á svið í Laugardalshöllinni mun hann ásamt hljómsveit hafa spilað á einum 99 tónleikum í Norður-Ameríku, Evrópu, Ástralíu og Asíu, þar á meðal tónlistarhátíðunum Coachella, Summer Sonic, Öya, Pukkelpop, Electric Picnic og Bestival. Tónleikaferðin hefur vakið mikla eftirtekt enda hefur Jónsi ferðast um með afar vandaða sviðsmynd. Jónsi leitaði til framleiðslufyrirtækisins 59 Productions og ljósahönnuðarins Phil Eddolls í London við hönnun hennar. 59 Productions hafa m.a. unnið fyrir ensku óperuna, enska þjóðleikhúsið, Metropolitan-óperuna í New York og listahátíðir í Evrópu. Forsala á tónleika Jónsa hefst á fimmtudaginn kl. 10.00 á Midi.is og afgreiðslustöðum Mida.is. Jónsi hefur ákveðið að gefa 300 unglingum á aldrinum 13 til 16 ára tækifæri til að komast á tónleikana á miðaverði sem þeir ráða við, eða 1.000 kr. Annars kostar miðinn 3.900 og 4.900 krónur.
Mest lesið Barnastjarnan Kaylee Hottle látin Lífið Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið Lífið Feimnin við að rukka: Ekki treysta á „ég borga þetta og þú næsta“ Áskorun „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Lífið Rýnt í stikluna: Smekkfull stikla af ofurhetjum Bíó og sjónvarp Uppskriftir: Axel bauð í þriggja rétta grillveislu Lífið samstarf „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Lífið Stríðið um baðstrendur Ítalíu Lífið Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Lífið Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Lífið Fleiri fréttir Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Sjá meira