Mið-Ísland með uppistand á Gljúfrasteini 7. maí 2010 10:00 Ari, Dóri, Jóhann og Bergur í Mið-Íslandi, en hópurinn verður með uppistand á menningarsetrinu Gljúfrasteini á laugardag. Fréttablaðið/GVA
Uppistandshópurinn Mið-Ísland mun kitla hláturtaugar manna að Gljúfrasteini klukkan 16 á laugardag. Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, segir hópinn ætla að vera með menningarlegt grín þar sem gert er grín að ungskáldum, tónlistarhúsinu og ýmsum þemum úr bókum Guðbergs Bergssonar. „Okkur fannst mjög viðeigandi að halda uppistand að Gljúfrasteini og höfum séð það í hillingum alveg frá því við stofnuðum hópinn. Ég vann þarna lengi og sá um skipulagningu ýmissa viðburða þar og sá þá að þetta er góður vettvangur fyrir uppistand. Þetta er líka algjör hláturhöll og þarna hefur mikið verið grínast í gegnum tíðina," útskýrir Dóri DNA, sem einmitt er barnabarn Nóbelsskáldsins Halldórs Laxness. Dóri kemur fram ásamt þeim Jóhanni Alfreð, Ara Eldjárn og Bergi Ebba. Hann hyggst koma fram órakaður og með hatt að hætti ungskálda en segir hina piltana ekki muna gera slíkt hið sama. „Ég er sá eini í hópnum sem vex almennilega skegg, hinir hefðu þurft lengri fyrirvara ef þeir ættu að geta verið með." Hann segist viðbúinn fjölmenni en óttast ekki að þurfa að vísa fólki frá sökum plássleysis. „Það er svo ótrúlegt með þennan sal að það virðist alltaf vera pláss fyrir alla. Þetta er líka fyrsta giggið okkar eftir árshátíð hópsins sem haldin var í Kaupmannahöfn fyrir stuttu og þess vegna mjög viðeigandi að það fari fram að menningarsetrinu Gljúfrasteini." Aðgangseyrir er 800 krónur og gildir það einnig sem miði inn á safnið. - sm Hér má sjá myndband þar sem Ari Eldjárn fer á kostum þegar hann hermir eftir Bubba Morthens í útvarpsþættinum Færibandinu.
Mest lesið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Brúðkaup ársins 2025 Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Lífið Laufey á landinu Lífið Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Fleiri fréttir Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Sjá meira