Tugmilljóna gjöld á flugið 14. maí 2010 06:00 ÁRNI GUNNARSSON
Flugrekendur eru ósáttir við að ekki hafi verið sótt um undanþágu fyrir innanlandsflug vegna kaupa á kolefniskvóta. Frá 1. janúar 2012 þurfa flugfélög að tryggja sér losunarkvóta fyrir kolefnisútblástur. Flugrekendur vildu undanþágu enda giltu sérstakar aðstæður í flugi innanlands. Gjöldin væru fyrst og fremst hugsuð til að efla umhverfisvænar samgöngur líkt og lestir, sem ekki sé til að dreifa hér á landi. Mun minni mengun sé af flugi á hvern farþega heldur en bílum. „Það hefur ekki reynt á sambærileg mál og innanlandsflugið í samningum við Evrópusambandið. Við höfum ekki aðra kosti í boði, eins og lestir eða annað sem menn hafa horft til. Okkur flugrekendum hefði þótt eðlilegt að láta reyna á þetta,“ segir Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands. Hann segir ljóst að um tugmilljóna króna gjöld verði að ræða fyrir fyrirtækið. Hörður Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ernis, segir óskiljanlegt hvernig stjórnvöld hafi haldið á málum fyrir Íslands hönd. Um nýja skattlagningu sé að ræða sem flugfélögin standi ekki undir. Því verði að velta þeim út í verðlagið. Ingvar Sverrisson, aðstoðarmaður samgönguráðherra, segir mikla vinna hafa verið lagða í að undirbúa aðlögun að innleiðingu gerðarinnar sem miðaði að því að undanskilja innanlandsflug frá henni. Aldrei kom til álita að undanskilja millilandaflug frá áhrifum tilskipunarinnar þar sem kvóti í flugi innan EES hefði komið til óháð innleiðingu gerðarinnar. Fyrir lá að litlar líkur hefðu verið á því að ESB hefði fallist á undanþágu fyrir innanlandsflugið þar sem sambandið hafði hafnað slíkum beiðnum frá öðrum aðildarríkjum og Noregur hætt við sömu beiðni. Ísland hefði því staðið eitt í samningum. Ingvar segir að aðlögunin hefði jafnframt leitt til seinkunar á innleiðingu þannig að það hefði tafið fyrir því að sá kvóti sem félli til vegna okkar flugfélaga í millilandaflugi hefði verið ráðstafað hér. „Þá ákvað ESB á síðustu metrunum að falla frá 100 prósent kvótasetningu og lækka niður í 15 prósent og við féllum frá aðlögun. Við erum þó með almenna fyrirvara um að breyta afstöðu okkar verði kvótahlutfallið endurskoðað.“- kóp
Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Sjá meira