Innlent

Bíl samgöngumálaráðherra ekki ólöglega lagt

Stjórnarráðið
Stjórnarráðið

Bílstjóri samgöngumálaráðherra vill koma því á framfæri að það hafi ekki verið hans bifreið sem stöðumælavörður gerði athugasemd við í gær. Hið rétt sé að bíl sjávarútvegsráðherra hafi verið ólöglega lagt.

Stöð 2 greindi frá því í gær að stöðumælavörður hafi bent bílstjóra eins af ráðherrabílunum fyrir framan stjórnarráðið að bílnum væri lagt upp á gangstétt og væri því ólöglegur. Kom fram að um bíl samgöngumálaráðherra væri að ræða og hefði hann fært bílinn.

Bílstjóri samgöngumálaráðherra hafði samband við fréttastofu og benti á að þetta væri ekki alls kostar rétt. Það væri bílstjóri sjávarútvegsráðherra sem hefði lagt ólöglega og leiðréttist það hér með.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×