Hundruð hafa ekki rétt á atvinnustyrk 30. júlí 2010 05:30 Um 500 manns í Reykjavík þiggja bætur frá Reykjavíkurborg þar sem þeir hafa ekki bótarétt hjá Vinnumálastofnun
Um 500 manns í Reykjavík þiggja bætur frá Reykjavíkurborg þar sem þeir hafa ekki bótarétt hjá Vinnumálastofnun. Þetta á til dæmis við um þá sem hafa dvalið lengi erlendis. Þeir standa verr að vígi þegar kemur að umsóknum um atvinnu, þar sem atvinnurekandi getur ekki fengið styrk með þeim úr Atvinnuleysistryggingarsjóði. Ástæðan er sú að styrkurinn er greiddur frá ríkinu, en sveitarfélög greiða ekki sams konar styrk. Vinnuveitandinn fær ígildi atvinnuleysisbóta greitt frá Vinnumálastofnun, eða um 150 þúsund krónur og sparar sér þannig umtalsverðan launakostnað. Fréttablaðið veit um tilvik þar sem maður hafði fengið vilyrði fyrir vinnu, en atvinnurekandinn hætti við að ráða hann þegar hann komst að því að maðurinn ætti ekki rétt á atvinnuleysisbótum og því fengi vinnuveitandinn ekki atvinnustyrkinn. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir að ekkert banni sveitarfélögum að greiða sams konar styrk með atvinnulausum, til að auka líkurnar á að þeir verði ráðnir. Sveitarfélögin hafa hins vegar í sumum tilvikum þegið styrkinn, þegar þau hafa ráðið til sín fólk af atvinnuleysisskrá. „Fyrstu sex mánuði ársins hefur Vinnumálastofnun greitt til fyrirtækja, sveitarfélaga, stofnana og félagasamtaka rúmar 239 milljónir króna vegna starfsþjálfunar og átaksverkefna. Það þýðir að í hverjum mánuði hafa verið um 360 einstaklingar við störf með þessum formerkjum," segir Gissur. Þetta á aðeins við um atvinnuleitendur með bótarétt úr sjóðnum, sumarátak fyrir námsmenn og atvinnuleitendur stendur utan við þessar tölur. Fólk sem ekki hefur rétt á atvinnuleysisbótum þarf að sækja bætur til félagsmálayfirvalda í viðkomandi sveitarfélagi. Hjá Reykjavíkurborg fengust þær upplýsingar að 1. maí hefðu 487 Reykvíkingar, án réttar til atvinnuleysisbóta, þegið bætur hjá sveitarfélaginu. Að auki þáðu 208 með rétt á atvinnuleysisbótum bætur frá sveitarfélaginu. Alls þáðu 1.159 bætur frá borginni 1. maí. Fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg verður mest 125.540 krónur á mánuði. Ekki náðist í Björk Vilhelmsdóttur, formann velferðarráðs Reykjavíkur, við vinnslu fréttarinnar.- kóp
Mest lesið Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? Innlent Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting Innlent Fleiri fréttir Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Sjá meira