Varðskipið Ægir gleður börn í Senegal 19. apríl 2010 11:42 Varðskipið Ægir er á leið til Senegal. MYND/Guðmundur St. Valdimarsson
Varðskipið Ægir er á leið til Senegal á morgun þar sem stendur til að taka þátt í eftirliti með Frontex, Landamærastofnun Evrópu sem Ísland er aðili að í gegnum Schengen samstarfið. Í tilkynningu frá Gæslunni segir að sú hugmynd hafi vaknað hvort hægt væri að styrkja hjálparsamtök í Senegal með því að flytja til þeirra vörur með varðskipinu. „Eftir smá eftirgrennslan kom í ljós að ABC rekur barnaskóla í höfuðborg Senegal, Dakar. Skólinn er fyrir 149 fátæk börn á aldrinum 3ja til 7 ára en einnig er rekið athvarf fyrir götudrengi. Á hverjum degi koma 30-50 börn í athvarfið þar sem þau fá mat, fara í sturtu, þvo fötin sín, leika sér og síðast en ekki síst fá þau kennslu. Enn fremur er rekinn fótboltaskóli einu sinni í viku fyrir stráka á aldrinum 10 - 16 ára." Á vegum ABC Barnahjálpar hefur staðið yfir söfnun meðal stuðningsmanna og hefur einkum verið óskað eftir pappír, stílabókum, litum, blýöntum, pennum, ýmis konar borðspilum, leikföngum og íþróttavörum fyrir börnin. Einnig vantar hillur, skólaborð og stóla fyrir börnin. Auk þess að leita til stuðningsmanna hefur ABC Barnahjálp og Landhelgisgæslan vakið athygli nokkurra fyrirtækja á söfnuninni og fengið mjög góðar undirtektir. Varðskipið Ægir mun láta úr höfn í Reykjavík á morgun og vonandi með töluvert af áhöldum og vörum til stuðnings krökkunum í barnaskóla ABC í Senegal.
Mest lesið Eldur í Elliðaárdal Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Fleiri fréttir Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Sjá meira