Innlent

Ekið á átta ára dreng: Líðan hans er stöðug

Frá slysstað.
Frá slysstað.
Átta ára drengur sem ekið var á við Mjöddina seinni partinn í dag var við skerta meðvitund þegar sjúkrabílar komu að honum, samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.

Líðan hans er stöðug, samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum. Hann er í rannsóknum á spítalanum og ekki er vitað um alvarleika áverkana að svo stöddu.

Sjúkraflutningamönnum barst tilkynning um alvarlegt slys og mættu þrír sjúkrabílar á slysstað.

Drengurinn var á reiðhjóli þegar ekið var á hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×