Slapp tvisvar út af lokaðri deild sömu nóttina 27. júlí 2010 10:40 „Við vitum eiginlega ekkert hvað mun taka við þegar hann er búinn þarna,“ segir systir mannsins. „
Ég hef verulegar áhyggjur af því að fólk sem er í svona slæmu ástandi sé ekki undir meira eftirliti en það, að það geti farið út án þess að enginn taki eftir því," segir systir 24 ára gamals manns með geðklofa. Hann var vistaður á deild 32 A Landspítalans í síðustu viku vegna þess hve veikur hann var. Um nóttina náði hann að sleppa út og fór þá heim til móður sinnar og veitti sambýlismanni hennar áverka. Lögreglan fann hann svo stuttu síðar og fór með hann aftur upp á sjúkrahús. Stuttu síðar slapp hann aftur út af deildinni. Systir mannsins hefur miklar áhyggjur því eftirliti sem er á deildinni og furðar sig á því að svona lagað geti gerst.Enginn tók eftir því að hann var horfinn „Hann náði að komast út um glugga og var þá alveg út úr heiminum. Þegar hann kom heim til mömmu var hann ekki hann sjálfur og var mjög hættulegur. Hann veitti sambýlismanni hennar áverka áður en hann hvarf út nóttina. Lögreglan fann hann svo síðar sömu nótt," segir systirin. Móðirin hringdi upp á deild, þar sem hann var búinn að vera fjarverandi frá deildinni í tvo klukkutíma. „Þar var enginn búinn að taka eftir því að hann væri horfinn."Slapp aftur út Eftir að hafa komið aftur upp á spítala leið ekki á löngu þar til hann slapp aftur út. „Löggan finnur hann svo stuttu seinna á umferðarmiðstöðinni," segir systir mannsins. Hún segir þetta ekki í fyrsta skiptið sem hann náði að brjótast út, fyrir ekki svo löngu síðan náði hann að stela lyklum af starfsmanni og komast þannig út. „Þetta er ekki eðlilegt" Hún hefur miklar áhyggjur af því að eftirlitið sé ekki meira á spítalanum. „Ég hef verulegar áhyggjur," segir hún og furðar sig á því að svona veikur einstaklingur geti sloppið út tvisvar sömu nóttina. „Ég hugsa að ef hann myndi sleppa aftur út myndi ég draga fyrir og læsa hurðunum heima hjá mér, þegar hann er í þessu ástandi er hann hættulegur og engan veginn hann sjálfur." Hún furðar sig á því hvernig svona lagað geti gerst. „Maður hugsar bara hvað er í gangi þarna? Er fólk ekki að vinna sína vinnu eða er svona undirmannað vegna niðurskurðar? Þetta er ekki eðlilegt, ég efast um að þetta sé í fyrsta sinn að einhver hefur sloppið út."Vita ekkert hvað tekur við Hún segir að vistunin á deildinni sé einungis tímabundið úrræði. „Flest skiptin áður sem hann hefur verið inni hefur ekkert tekið við, hann hefur alltaf dottið í sama farið aftur. Við vitum eiginlega ekkert hvað mun taka við þegar hann er búinn þarna. Það er bara verið að athuga hvort það sé eitthvað hægt að gera," segir hún sem segir að það sé ekkert í boði fyrir hann. „Það vantar sambýli fyrir svona rosalega veika einstaklinga."
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira