Innlent

Tveir dópaðir undir stýri í Eyjum

Mikill viðbúnaður er í Eyjum vegna Þjóðhátíðar sem hefst næstu helgi.
Mikill viðbúnaður er í Eyjum vegna Þjóðhátíðar sem hefst næstu helgi.

Lögreglan hefur stóraukið umferðareftirlit í Vestmannaeyjum vegna komu fjölda gesta á Þjóðhátíð sem hefst næstu helgi. Tveir ökumenn voru í dag kærðir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna.

Í tilkynningu frá lögreglunni í Vestmannaeyjum kemur fram að annar ökumaðurinn hafi verið á þrítugsaldri en hinn á fertugsaldri. Gerð var húsleit á heimili eins þeirra og fundust nokkur gramm af hassi. Þá hafi einn ökumaður verið sviptur ökuréttindum.

Þá segir jafnframt að mikið muni mæða á fíkniefnaleitarhundi embættisins, hann hafi staðið vaktina í dag við komu Herjólfs til Eyja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×