Ferðalangar streyma til Eyja 27. júlí 2010 04:30
Ferðamönnum til Vestmannaeyja hefur snarfjölgað eftir að Landeyjahöfn var tekin í notkun fyrir viku síðan. Að sögn Guðmundar Pedersen, rekstrarstjóra Herjólfs, lætur nærri að fjöldi farþega hafi þrefaldast miðað við sama tíma í fyrra. Herjólfur er nú innan við þrjá stundarfjórðunga að sigla frá Landeyjahöfn til Eyja og fer fjórar til fimm ferðir á dag. „Það hefur verið veruleg aukning þessa fyrstu daga," segir Guðmundur. „Það er hellingur af farþegum, upp undir 400 í ferð, og bílarýmið, sem tekur 50 til 60 bíla, er nánast alltaf fullt." Veitingamenn hafa líka orðið varir við aukinn straum ferðamanna til Eyja. Hólmgeir Austfjörð er eigandi 900 Grill, sem var opnað í byrjun júní. „Það hefur verið nóg að gera hjá okkur í allt sumar, en það er ekki saman að líkja eftir að Landeyjahöfn var tekin í notkun," segir hann. „Helsti munurinn er sá að áður var fyrst og fremst annríki á kvöldin en nú er staðurinn þéttsetinn allan daginn. Við höfum fengið að lágmarki 100 gesti á dag," segir Hólmgeir, sem finnst líklegt að það sama sé upp á teningnum á öðrum veitinga- og kaffihúsum í bænum. Þá hefur ásókn í golfvöll bæjarins aukist á undanfarinni viku. „Við urðum vör við það strax fyrsta daginn þegar siglt var frá Landeyjahöfn," segir María Sigurbjörnsdóttir, starfsmaður hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja. „Við finnum líka fyrir miklum áhuga; það hafa margir hringt og spurst fyrir um vallartíma. Við eigum því von á að það verði enn meira að gera í ágúst, þegar þjóðhátíð er yfirstaðin." Það eru ekki aðeins túristar sem sækja Vestmannaeyjar heim. Einnig hefur borið á því að fólk af meginlandinu geri sér ferð til að sækja þar þjónustu. „Það hefur verið mikið að gera hjá okkur undanfarna viku," segir Sædís Eva Birgisdóttir. starfsmaður í versluninni Geisla. „Bæði eru þetta ferðalangar sem líta inn hjá okkur en líka fólk sem kemur hingað gagngert til að versla eða eftir annarri þjónustu. Það hefur eiginlega verið allt annar bæjarbragur undanfarna viku og hreint dásamlegt."- bs
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira