Lífið

Noomi skilin og farin til Hollywood

Noomi og Ola eru skilin og Noomi á leiðinni til Hollywood, laus og liðug. Mynd/Nordicphotos, Getty
Noomi og Ola eru skilin og Noomi á leiðinni til Hollywood, laus og liðug. Mynd/Nordicphotos, Getty
Hjónaband sænsku leikkonunnar Noomi Rapace og eiginmanns hennar, Ola, er að enda komið. Noomi og Ola voru eitt helsta stjörnupar Svía en Noomi varð að stórstjörnu eftir túlkun sína á tölvuhakkaranum Lisbet Salander í Millennium-þríleik Stiegs Larsson. Parið hefur aldeilis náð að plata sænsku pressuna því ekki er lengra síðan en rúmar tvær vikur síðan sást til þeirra láta vel að hvort öðru á rauða dreglinum á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum.

Það var Noomi Rapace sjálf sem skilaði inn pappírunum til dómara á föstudag, þó án undirskriftar makans. Sú tímasetning hefur eflaust verið vel skipulögð til að komast hjá ágangi fjölmiðla enda ljósvakamiðlar Svía búnir að vera undirlagðir af kosningunum sem fóru fram á sunnudaginn.

Ola og Noomi Rapace kynntust árið 2000, giftu sig árið 2001 og eiga saman einn son. Sambandið hefur verið einkar stormasamt og oftar en ekki hangið á bláþræði. Árið 2008 var Ola Rapace til að mynda handtekinn í bíl með ungri stelpu fyrir utan skemmtistað í Stokkhólmi með eiturlyf í fórum sínum. Í yfirheyrslum opnaði hann sig varðandi hjónabandsvandræðin og kenndi þeim um fíkn sína. Síðan þá virðist þó allt hafa leikið í lyndi og parið staðið saman í Lisbet Salander-ævintýrinu.

Noomi Rapace er að reyna koma sér á framfæri í Hollywood og er orðuð við hlutverk í kvikmyndinni Sherlock Holmes 2 en þar myndi hún leika við hlið stórstjarna á borð við Jude Law og Robert Downey Jr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.