Actavis okrar á samheitalyfjum Þorbjörn Þórðarson skrifar 27. júlí 2010 19:16
Lausleg könnun á nokkrum algengum samheitalyfjum sem tekin voru af markaði af Actavis og sett aftur á markað undir öðrum heitum sýnir að sjúklingar á Íslandi greiða margfalt hærra verð fyrir sömu vöru undir nýjum merkjum. Sveinn Rúnar Hauksson, heimilislæknir, segir að lyfjafyrirtækið Actavis hafi reglulega tekið lyf úr sölu án nokkurra skýringa sem hafi valdið sjúklingum miklum óþægindum. Hann segir að fyrirtækið hljóti að láta gróðasjónarmið ráða för, hætti að selja lyf sem skili litlum gróða og skeyti þannig ekki um hagsmuni sjúklinga. Nýlegt dæmi er malaríulyfið kínín, sem meðal annars hefur verið notað til að meðhöndla fótakrampa, var tekið af markaði eftir að framleiðslu þess var hætt hér á landi og voru sjúklingar með fótakrampa án þess í tvo mánuði. Þetta olli þeim eðlilega miklum óþægindum. Lyfið er nú komið aftur á markað undir nýju heiti en á hærra verði. Og dæmin eru fleiri. Eins og sést á töflunni kostuðu hundrað töflur af blóðþrýstingslyfinu hydramil rúmar 1200 krónur en kosta tæplega 2600 krónur í dag undir nýju heiti. Þunglyndis- og geðlyfið amilin kostaði 829 krónur. Actavis tók það af markaði og selur í dag amitryptiline, sem er í grunninn sama lyf, og kostar sama magn af lyfinu í dag, þ.e glas með hundrað töflum, 4.400 krónur. Munurinn er svo mest sláandi á folinsýru, ákveðinni tegund B-vítamíns sem þungaðar konur þurfa mest á að halda á meðgöngu. Eitt hundrað töflur kostuðu 952 krónur en kosta í dag undir nýju heiti, Actavis Folin Acid (e. Actavis fólinsýra) 5.110 krónur. Þessara upplýsinga var aflað í dag með einu símtali í apótek. Í þessu samhengi þarf að taka til athugunar að álagningarreglum á mörg þessara samheitalyfja hefur verið breytt. Að sögn Hauks Ingasonar í Garðsapóteki skýrir það hins vegar ekki þennan mikla verðmun.
Tengdar fréttir Segir engan fylgjast með Actavis samfélaginu til tjóns Heimilislæknir í Reykjavík segir að lyfjafyrirtækið Actavis hafi reglulega tekið lyf úr sölu án nokkurra skýringa sem hafi valdið sjúklingum miklum óþægindum. Hann leiðir líkum að því að fyrirtækið láti gróðasjónarmið ráða för, hætti að selja lyf sem skili litlum gróða og skeyti þannig ekkert um hagsmuni sjúklinga. 27. júlí 2010 12:15 Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira
Segir engan fylgjast með Actavis samfélaginu til tjóns Heimilislæknir í Reykjavík segir að lyfjafyrirtækið Actavis hafi reglulega tekið lyf úr sölu án nokkurra skýringa sem hafi valdið sjúklingum miklum óþægindum. Hann leiðir líkum að því að fyrirtækið láti gróðasjónarmið ráða för, hætti að selja lyf sem skili litlum gróða og skeyti þannig ekkert um hagsmuni sjúklinga. 27. júlí 2010 12:15