Innlent

Hættuástand þegar Herkúles vél missti afl - myndir

Hér sést Herkúles flugvélin lenda á Keflavíkurflegvelli.
Hér sést Herkúles flugvélin lenda á Keflavíkurflegvelli. Mynd/Páll Ketilsson

Talsverð hætta skapaðist þegar bandarísk herflugvél þurfti að nauðlenda á Keflavíkurflugvelli laust eftir klukkan sex í kvöld. Vélin missti afl á tveimur hreyflum af fjórum.

Tilkynning barst um hálf fimm leytið í dag um að bandarísk herflugvél af gerðinni Herkúles hefði misst afl á einum hreyfli og óskaði eftir leyfi til nauðlendingar. Um 20 manns voru um borð í vélinni.

Skömmu fyrir lendingu kom hins vegar í ljós að annar hreyfill, vinstra megin á vélinni hafði ofhitnað og var því talið að raunveruleg hætta hafi verið á ferð. Slökkt var á hreyflinum strax eftir lendingu.

Herkúles vélin var á leið til Afganistan með viðkoma í Englandi en er nú föst á Íslandi þar til gert hefur verið við vélina.



Herkúles vélin ber viðurnefnið „Team Shadow".Mynd/Páll Ketilsson
Hermaður við viðgerðarstörfMynd/Páll Ketilsson
Afl fór úr einum hreyfli og annar ofhitnaði.Mynd Páll Ketilsson
Herkúles vélin lendir á KeflavíkurflugvelliMynd/Páll Ketilsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×