Innlent

Laxar á þurru landi

Óvenju miklir þurrkar hafa verið á Vestfjörðum að undanförnu og er gróður víða orðinn mjög þurr. Þá er vatnsrennsli í laxveiðiánum við Ísafjarðardjúp orðið mjög lítið.

Eftir því sem rennslið minnkar, hitnar vatnið sem enn rennur, og hefur hitastigið í einni ánni farið upp í átján gráður. Við slíkar aðstæður dregur mjög úr veiðinni.

Lögreglumenn telja hættu á að sinu- eða gróðureldar kunni að kvikna, og biðja fólki að fara varlega með eld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×