Innlent

Bólusetja á við eyrnabólgu

Draga mun verulega úr slæmri eyrnubólga barna, lungnabólgu, blóðsýkingu og heiluhimnubólgu af völdu pneumókokkabaktería þegar bólusetning í ungbörnum gegn bakteríunum hefst. Stefnt er á að það verði gert á næsta ári.

Sjúkdómar af völdum bakteríanna leggjast aðallega þungt á börn og eldra fólk, að sögn Ásgeirs Haraldssonar yfirlæknis á barnaspítala Hringsins. Hann segir að gera megi ráð fyrir að það dragi úr sjúkdómum í öðrum aldurshópum um leið og farið verður að bólusetja ungbörnin. Börn séu aðalsmitberar sjúkdóma. Árlega deyja um sex manns af völdum sýkinganna, um fimm úr hópi eldra fólks.

Álfheiður Ingadóttir heilbrigðis­ráðherra sagði í samtali við Fréttablaðið að verið sé að leita leiða til að leggja fjármagn til bólusetninganna á næsta ári. Áætlað er að bólusetningin kosti á bilinu 120 til 140 milljónir króna árlega en ráðherra gerir ráð fyrir að verja 100 milljónum til þeirra á næsta ári enda hefjist bólusetning líklega ekki 1. janúar.

„Ávinningurinn af bólusetningunni er hins vegar margfaldur. Fyrir utan að færri veikjast verður minna álag á heilbrigðiskerfið og minna vinnutap svo dæmi séu tekin," segir ráðherra.

Að því er fram kemur í greinargerð með þingsályktunartillögu um bólusetninguna eru eyrnabólgur og vandamál þeim tengd eitt algengasta heilsuvandamál barna á Íslandi. Þar kemur einnig fram að talið er að allt að 95 prósent barna fái eyrnabólgu að minnsta kosti einu sinni fyrir sex ára aldur. Bent er á að eyrnabólga sé algengasta orsök sýklalyfjaávísana hér á landi og skýrir yfir helming allrar sýklalyfjanotkunar barna. Hin mikla notkun sýklalyfja hjá börnum eigi einna stærstan þátt í sýklalyfjaónæmi á Íslandi sem sé mikið hér miðað við nágrannalöndin.

Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu um bólusetninguna, bendir á að reynsla nágrannalandanna sem mörg hafi hafið þessa bólusetningu sé mjög góð.

Siv er bjartsýn á að þingið samþykki tillöguna sem vísað var til heilbrigðisnefndar eftir fyrstu umræðu á þriðjudag. Hún segir einkar ánægjulegt hve ráðherra hafi tekið vel í tillöguna.

sigridur@frettabladid.is














Fleiri fréttir

Sjá meira


×