Hertar aðgerðir til að innheimta sektir 17. maí 2010 04:00 Sveinn Arason ríkisendurskoðandi t.v. segir illa ganga að innheimta sektir vegna skattalagabrota. Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra segir fangelsisboðun vegna fésekta hvetja fólk til greiðslu þeirra.
Ríkisendurskoðun segir lítinn hluta sekta vegna skattalagabrota innheimtast og megi gera ráð fyrir að meirihluti þeirra sem fundnir verði sekir um skattalagabrot á næstunni afpláni refsingu sína í formi samfélagsþjónustu. Fram kom á vefsíðu Ríkisendurskoðunar í vikunni að frá júlí 2008 fram til mars á þessu ári hafi Fangelsisstofnun borist mál 44 einstaklinga sem dæmdir höfðu verið til að greiða sektir sem voru níu milljónir króna eða hærri. Samanlögð sektin hljóðaði upp á 1,3 milljarða króna. Samkvæmt upplýsingum sem Ríkis-endurskoðun hafi aflað sér hafi 81 prósent sekta verið greidd með samfélagsþjónustu. „Okkur fannst rétt að vekja athygli á þessu. Það hefur gengið mjög illa að innheimta sektir vegna skattalagabrota,“ segir Sveinn Arason ríkisendurskoðandi. Hann bendir á að samkvæmt íslenskum lögum felist refsingar ýmist í fésekt eða fangelsi. Geti maður sem dæmdur er til sektar ekki greitt hana þurfi viðkomandi að afplána vararefsingu í formi fangelsisvistar. Undanfarin ár hefur vararefsing vegna hvítflibbabrota nær ávallt verið afplánuð með samfélagsþjónustu vegna skorts á fangelsisrýmum. Hámark refsingarinnar er sex mánuðir. Ríkisendurskoðun bendir jafnframt á að þeim hafi fjölgað sem logið hafi til um greiðslugetu sína og frekar viljað inna af hendi samfélagsþjónustu. Efla verði úrræði yfirvalda til að kanna fjárhagsstöðu þeirra sem fundnir eru sekir um hvítflibbabrot þegar háar sektir blasi við. Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra segir unnið að því að fjölga fangaplássum og vísar til þess að fangelsið Bitra í Flóahreppi verði opnað á föstudag. Seint í síðasta mánuði voru þangað komnir fimm fangar en nokkur pláss eru frátekin fyrir þá sem boðaðir hafa verið til að afplána vararefsingu vegna fésekta. „Með því einu að boða fólk til afplánunar út af fésektum myndast hvati til að greiða þær,“ segir hún. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Innlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun Innlent Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Erlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Innlent Fleiri fréttir Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Sjá meira