Rækjuveiðimaður fagnar ákvörðun ráðherra SB skrifar 20. júlí 2010 14:53
Halldór Hermannsson fyrrverandi rækjuveiðimaður á Ísafirði fagnar ákvörðun sjávarútvegsráðherra um að gefa veiðar á úthafsrækju frjálsar. Hann segir viðbrögð útgerðarmanna bera vott um ótta, ekkert kerfi sé óbreytanlegt og frjáls veiði á rækju muni ekki kippa fótunum undan atvinnugreininni. „Útgerðarmennirnir sem eiga kvótann eru bara logandi hræddir - alveg eins og í skötuselsmálinu. Þeir halda að þetta sé byrjunin á því að kvótakerfinu verði breytt og verða eins og óðar hænur ef það er talað um breytingar. En það er ekkert kerfi sem er eilíft eða óbreytanlegt og ef þessi tilraun gengur ekki er lítið mál að setja kvótann á aftur," segir Halldór. Halldór átti rækjuverksmiðju á Ísafirði í ein 20 ár og hefur mikla reynslu af rækjuveiðum. Hann segir rækjuveiði hafa snarminnkað fyrir um áratug þegar rækjan var á svo lélegu verði að veiðar á henni hættu að borga sig. Verðmæti kvótans snarminnkaði og því hafi hann frekar verið notaður sem skiptimynt fyrir annan kvóta. „Menn þurftu jafnvel að kaupa rækjur frá Noregi og Kanada og borga af henni svokallaðan upprunatoll til að verka í verksmiðjum hérna heima. Nú þegar á að gefa þetta frjálst eru útvegsmenn óðir og uppvægir við að veiða á íslenskum miðum því þeir vilja ekkert missa og er hræddir við að ef þetta verði gefið frjálst haldi sú þróun áfram." Halldór sem er nú sestur í helgan stein segist allt sitt líf hafa reynt að vera sanngjarn og segja sannleikann, en fyrir það hafi hann á stundum fengið bágt fyrir. Hann er ánægður með ákvörðun ráðherra og segir um að gera að sjá hvernig til tekst. „Ég hef fulla trú á að þessar veiðar eigi að vera frjálsar."
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Innlent Fleiri fréttir Sífellt fleiri sprauta sig með ólöglegu efni til að fá brúnni húðlit Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Sjá meira