Innlent

Grilluðu 300 pylsur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn höfðu marga munna að metta.
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn höfðu marga munna að metta.
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn grilluðu um 300 pylsur á Austurvelli í hádeginu. Bjarni Ingimarsson, sem er einn þeirra, segir að þeir hafi komið saman til þess að stytta sér stundir í verkfallinu sem hófst í dag. „Það kom mikið af fólki sem átti leið þarna framhjá, túristar og fólk sem býr í nágrenninu," segir Bjarni.

Hann segir að fólk hafi verið áhugasamt um málstað slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. „Við fáum nánast eingöngu jákvæða strauma frá fólki. Það skiptir engu máli hvort það eru Íslendingar eða túristar," segir Bjarni. Hann segir líka að menn hafi verið boðnir og búnir til þess að gefa veitingar í grillveisluna. Goði hafi gefið pylsur, Myllan brauð og Vífilfell drykkjarföng.

Annars segja slökkviliðsmenn að dagurinn hjá þeim hafi verið rólegur. Fólk hafi ekki verið að óska mikið eftir aðstoð sjúkrabíla en þó hafi sjúkraflutningamenn þurft að sinna ákveðnum verkefnum sem gátu alls ekki beðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×