Dagur: Slæm staða OR varpar skugga á ársreikninginn 4. maí 2010 16:30
Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn segir að slæm staða Orkuveitunnar og aðgerðarleysi í fjármálum fyrirtækisins varpi skugga á annars vel viðundandi stöðu borgarsjóðs en ársreikningur Reykjavíkurborgar var lagður fram í borgarstjórn í dag. „Svo langt er gengið að fjármálaskrifstofa birtir skýrslu með þungvægum ábendingum sem ekki er hægt að skilja öðru vísi en harða gagnrýni á afneitun og aðgerðarleysi borgarstjóra og meirihlutans í málefnum Orkuveitu Reykjavíkur," segir Dagur og bendir á að fjármálastjóri sé þó næsti undirmaður borgarstjóra. „Skuldir fyrirtækisins hafa fjórfaldast á rúmum þremur árum og eru 241 milljarður króna. Í fréttatilkynningu frá skrifstofu borgara segir að ársreikningurinn feli í sér "mikil og góð tíðindi fyrir Reykvíkinga". Umfjöllun um Orkuveitu Reykjavíkur ber hins vegar þvert á móti með sér að staðan sem ársreikningur lýsir felur í sér "vond tíðindi": miklar gjaldskrárhækkanir og samdrátt í framkvæmdum," segir Dagur ennfremur og bætir við að hvort tveggja skrifist á fjármálastjórn og aðgerðarleysi. „Borgarstjóri hefur hins vegar neitað að horfast í augu við stöðuna eða haft kjark til að greina borgarbúum frá því hvernig eigi að bregðast við. Áhættumat vegna Orkuveitunnar hefur þó legið á borði borgarsstjóra frá 27. janúar sl.," segir Dagur meðal annars. Í skýrslu fjármálaskrifstofu borgarinnar er að sögn Dags kallað eftir áætlun um gjaldskrárhækkanir næstu árin hjá Orkuveitunni, aðgangi að lánalínum í erlendri mynt og frestun fjárfestinga fyrirtækisins, svo dæmi séu tekin. „Þá er bent á að endurfjármögnunarþörf OR fari vaxtandi 2010-2013 en á tímabilinu þurfi að afla alls 78 milljarða króna miðað við óbreyttar fyrirliggjandi áætlanir. Minnihlutinn í borgarstjórn hefur lengi varað við fjárhagsstöðu Orkuveitunnar og kallað eftir áhættumati vegna stöðu Orkuveitunnar og tillögum borgarstjóra og meirihlutans til að ráða úr þeim vanda sem birst hefur í árshlutauppgjörum fyrirtækisins sl. ár," segir Dagur og segir að engu sé líkara en að það eigi viljandi að draga fram yfir komandi borgarstjórnarkosningar að kynna borgarbúum stöðuna einsog hún er. „Skýrsla fjármálaskrifstofu Reykjavíkborgar hefur nú gert þær fyrirtætlanir að engu." Skýrsluna má í heild sinni sjá hér.
Tengdar fréttir Borgarsjóður hallalaus og veruleg umskipti í rekstri Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2009 er lagður fram á borgarstjórnarfundi í dag en samkvæmt honum var borgarsjóður rekinn hallalaus og veruleg umskipti urðu til hins betra í rekstri samstæðunnar. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri segir þetta mikil og góð tíðindi fyrir Reykvíkinga. 4. maí 2010 14:40 Mest lesið Ótrúlegur árekstur: „Ég sá bara dekk og púströr“ Innlent Fráfarandi starfsmaður Sólheima: „Eins og ég sé að sleppa frá einangruðu einræðisríki“ Innlent Nennti ekki að tala við „atvinnubetlara“ og sagði henni að fokka sér Innlent Vildi kynnast Kristjáni en var ítrekað sagt að „fokka sér“ Innlent Losnar fyrr og fær ekki að koma aftur í 30 ár Innlent Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Erlent Kallar eftir náðun Kouranis og brottvísun strax á morgun Innlent Trump-liðar heita hefndum Erlent „Ég mun ekki sjá eftir honum“ Innlent Tvíburarnir fengu ár í viðbót Innlent Fleiri fréttir „Þegar þú verður ráðherra verður þú að tala af ábyrgð“ Ekkert bólaði á ræðumanni Biðin eftir leikskólaplássi kostaði móður vinnuna Lýsti sjálfsvígshugsunum í pontu Alþingis Hinsegin fólk upplifi óöryggi í strætisvögnum Nennti ekki að tala við „atvinnubetlara“ og sagði henni að fokka sér Afgerandi niðurstaða um þjóðarmorð og óþreyjufullir foreldar á Nesinu Sósíalistar vilja Sönnu burt en hún kveðst koma af fjöllum Fráfarandi starfsmaður Sólheima: „Eins og ég sé að sleppa frá einangruðu einræðisríki“ „Ég veit ekki hversu hátt þarf að öskra orðið þjóðarmorð“ Vildi kynnast Kristjáni en var ítrekað sagt að „fokka sér“ Stöðugildum á vegum ríkis fjölgaði um rúm 500 á síðasta ári Reikna með gosi í lok mánaðar Rændi bíl í Veiðivötnum og ók undir áhrifum af vettvangi Vonar að fólk taki ekki mark á auglýsingum þar sem farið er með rangindi Ótrúlegur árekstur: „Ég sá bara dekk og púströr“ Merki um að gjá í samfélaginu sé að stækka Skýrt að Ísland sé ekki griðastaður stríðsglæpamanna Stjórnvöld ætli að hafa yfirhöndina gagnvart skipulögðum glæpahópum Ísraelar sakaðir um þjóðarmorð og dómsmálaráðherra styður lögregluna í aðgerðum gegn Hells Angels Lokun Sorpu á Dalvegi enn frestað Munu áfram stýra fastanefndunum Fá að halda framkvæmdum áfram í bili Eldur í geymslu í blokk á Selfossi Yfirlæknir gagnrýnir auglýsingu gegn lyfi við RS-veiru Flestir sem skráðu sig í Skorradalshrepp fá að kjósa Frumvarp um afnám laga um orlof húsmæðra lagt fram í tíunda sinn Ríkið situr á þúsundum hektara af framræstu votlendi Sló töskunni í vélarhlíf lögreglubifreiðar „Þetta var vissulega ekki í starfslýsingunni“ Sjá meira
Borgarsjóður hallalaus og veruleg umskipti í rekstri Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2009 er lagður fram á borgarstjórnarfundi í dag en samkvæmt honum var borgarsjóður rekinn hallalaus og veruleg umskipti urðu til hins betra í rekstri samstæðunnar. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri segir þetta mikil og góð tíðindi fyrir Reykvíkinga. 4. maí 2010 14:40
Ísraelar sakaðir um þjóðarmorð og dómsmálaráðherra styður lögregluna í aðgerðum gegn Hells Angels