Borgarsjóður hallalaus og veruleg umskipti í rekstri 4. maí 2010 14:40
Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2009 er lagður fram á borgarstjórnarfundi í dag en samkvæmt honum var borgarsjóður rekinn hallalaus og veruleg umskipti urðu til hins betra í rekstri samstæðunnar. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri segir þetta mikil og góð tíðindi fyrir Reykvíkinga. Að sögn Hönnu Birnu sýnir ársreikningurinn í hnotskurn þá ábyrgu fjármálastjórn sem Reykjavíkurborg hefur ástundað á síðasta ári. „Borgarsjóður er rekinn hallalaus og hagræðingaraðgerðir hafa skilað árangri. Við höfum með samstilltu átaki náð nægjanlegum sparnaði til að geta haldið uppi góðri grunnþjónustu án þess að þurfa að auka álögur á almenning á þessum erfiðu tímum," segir Hanna Birna ennfremur, en hjá Reykjavíkurborg voru hvorki skattar né gjaldskrár fyrir grunnþjónustu hækkaðar á árinu. Hagræðing og sparnaður Rekstrarniðurstaða borgarsjóðs, A-hluta, var jákvæð um 3,2 milljarða króna árið 2009 en hún var var 2,3 milljarðar árið 2008. Í tilkynningu frá borginni segir að meginástæður þessarar hagstæðu niðurstöðu séu mikill árangur fagsviða borgarinnar við að ná markmiðum um sparnað og hagræðingu í rekstri, hærri útsvarstekjur en áætlun gerði ráð fyrir og breyting lífeyrisskuldbindinga sem lækkaði útgjöld. „Þessi niðurstaða náðist þrátt fyrir að gengisþróun hafi verið óhagstæðari og verðlag hærra en áætlun gerði ráð fyrir. Rekstrarniðurstaðan lýsir í hnotskurn miklum sveigjanleika og góðu rekstrarhæfi," segir ennfremur. Þá urðu veruleg umskipti til hins betra í rekstri samstæðunnar, A og B-hluta, miðað við árið á undan. Rekstrarhalli var á samstæðunni um 1,7 milljarða króna miðað við 71 milljarð árið 2008. „Þennan halla má einkum rekja til þess að gengis- og verðlagsþróun var óhagstæðari en það sem opinberar spár gerðu ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar fyrir fjármagnsliði var hins vegar jákvæð um rúmlega 9,7 milljarða sem er betri niðurstaða en árið 2008 og betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. „Það sýnir að samstæðan öll hefur brugðist við breyttum rekstraraðstæðum af miklu afli," segir í tilkynningunni. Hanna Birna borgarstjóri segir að þessa góða niðurstöðu megi þakka þeim nýju vinnubrögðum sem innleidd hafa verið við fjármálastjórnina hjá Reykjavíkurborg. Í tilkynningunni er bent á að fjárhagsáætlunin hafi verið unnin í miklu samráði fulltrúa meirihluta og minnihluta í borgarstjórn en þann 7. október 2008 var samþykkt samhljóða aðgerðaráætlun vegna aðstæðna í efnahags- og atvinnumálum sem hafði víðtæk áhrif á fjármálastjórnina og fjárhagsáætlunarvinnu Reykjavíkurborgar fyrir árin 2009 og 2010. „Leiðarljós aðgerðaráætlunarinnar var að standa vörð um grunnþjónustuna, störfin og gjaldskrár og við það hefur verið staðið en starf aðgerðarhópsins hefur verið leitt af Óskari Bergssyni, formanni borgarráðs." Aðgerðirnar skiluðu árangri Þá var kallað eftir tillögum starfsmanna um bestu lausnir í nauðsynlegum aðhaldsaðgerðum og voru um 300 tillögur nýttar við endurskoðun áætlunar í mars 2009. „Þessar nýju leiðir í fjárhagsáætlunarvinnunni voru tilnefndar til verðlauna á vegum Eurocities samtakanna á árinu 2009. Ársreikningurinn staðfestir árangur af þessum aðgerðum." Í tilkynningu borgarinnar er bent á samanburð í skýrslu endurskoðenda á niðurstöðum ársreikninga síðustu ára. „Öll árin tímabilið 2002-2006 var hallarekstur á A-hluta borgarsjóðs. Hins vegar hefur verið hallalaus rekstur öll árin 2007-2009 þrátt fyrir þau miklu efnahagsáföll sem hafa gengið yfir og leitt hafa til minni skatttekna og verulegrar aukningar velferðarútgjalda - og þrátt fyrir að útsvar og þjónustugjöld hafi ekki verið hækkuð eins og í flestum öðrum sveitarfélögum," segir að lokum.
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira