Ráðuneytafrumvarp ekki lagt fram á vorþingi Höskuldur Kári Schram skrifar 14. maí 2010 18:47 Steingrímur J. Sigfússon gerir ekki ráð fyrir að frumvarpið verði lagt fram á yfirstandandi þingi.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, telur ólíklegt að frumvarp um fækkun og sameiningu ráðuneyta verði lagt fram á yfirstandandi vorþingi. Ríkisstjórnin megi þó ekki hlífa sjálfri sér við að ná fram hagræðingu. Ríkisstjórnin afgreiddi í morgun frumvarp sem felur í sér sameiningu og fækkun ráðuneyta í samræmi við stjórnarsáttmálann. Samkvæmt frumvarpinu verður til nýtt Velferðarráðuneyti með sameiningu heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytis. Iðnaðar, sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytið verða sameinuðu í eitt atvinnuvegaráðuneyti og þá breytist umhverfisráðuneytið í umhverfis og auðlindaráðuneytið. Ráðuneytum fækkar úr tólf í níu við þessar breytingar. Þingflokkarnir fá nú frumvarpið til umfjöllunar en Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur lagt áherslu á að málið fái skjóta afgreiðslu. Nokkrir þingmenn vinstri grænna hafa hins vegar lýst yfir andstöðu við frumvarpið sérstaklega hvað varðar breytingar á sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytinu. Steingrímur J. Sigfússon á ekki von á því að frumvarpið verði lagt fram á Alþingi fyrir sumarfrí. „Það verður ekki afgreitt þetta mál fyrir sumar. Það er alveg augljóst. Við munum væntanlega kynna stöðu þess með einhverjum hætti og kynna hvernig við setjum það í áframhaldandi vinnu og skoðun og þá ekki síst hvernig við ætlum að haga samráði við þá sem að við eiga búa," segir hann. Steingrímur segist skilja áhyggjur manna sem hafa gagnrýnt þessar breytingar. „Um leið er það mikilvægt að stjórnarráðið og ríkisstjórnin hlífi ekki sjálfri sér við að ná hagræðingu. Og þora að endurskipuleggja málin á sama tíma og við erum að ætlast til þess alls staðar í rekstrinum og hjá öllum opinberum stofnunum. Þannig að ég held að sé ekkert sérstök samúð með því að það megi engu hreyfa innan stjórnarráðsins á þessum tímum," segir Steingrímur.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Sjá meira