Stjórnvöld hvött til að stöðva fyrirhugaðar stjórnkerfisbreytingar 14. maí 2010 13:12 Samtökin hvetja til þess að horfið verði frá breytingum á ráðuneyti sjávarútvegs- og landbúnaðarmála sem Jón Bjarnason stýrir núna.
Fjölmörg samtök í sjávarútvegi, landbúnaði, lax-og silungveiði hafa sent forsætisráðherra og fjármálaráðherra bréf vegna fyrirhugaðra stjórnkerfisbreytinga og áhrifum þeirra á verkefni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Í bréfinu eru áhyggjur samtakanna af fyrirhuguðum breytingum sem hafa verið boðaðar á verkefnum ráðyuneytisins ítrekaðar og eru stjórnvöld hvött til þess að hverfa frá þeim. Þá er minnt á fund sem fulltrúar samtakanna áttu í forsætisráðuneytinu í september í fyrra en þar segja þau að þeim hafi verið lofað að stofnaður yrði sérstakur starfshópur um breytingarnar þegar þar að kæmi, með aðild hagsmunasamtaka. Í minnisblaði sem lagt var fram á fundinum í september var bent á nauðsyn náinna tengsla á milli grunnstofnana og ráðuneyta til að tryggja að stjórnarathafnir byggi á faglegri ráðgjöf. „Ekkert samráð hafði þá verið við þá aðila sem málið varðar. Þá lágu ekki fyrir nein gögn um hagkvæmni eða forsendur fyrirhugaðra breytinga," segir í bréfinu. „Á fundinum var því lýst af hálfu fulltrúa forsætisráðuneytisins að umrædd vinna væri skammt á veg komin og því heitið að stofnaður yrði starfshópur um verkefnið þegar þar að kæmi, með aðild hagsmunaðila," segir ennfremur. „Með vísan til þess sem að framan greinir kemur það okkur algjörlega á óvart að ríkisstjórnin hyggist ljúka málinu með framlagningu lagafrumvarps á næstu dögum, eins og ráða má af fréttum, án nokkurs samráðs við hagsmunaaðila. Með því væri gengið á bak þeirra loforða sem okkur hafa verið gefin," segir að lokum um leið og óskir um faglega vinnu með aðkomu hagsmunaaðila eru ítrekaðar. Við ítrekum óskir okkar um að málið verði unnið faglega með aðkomu þeirra sem það varðar. Undir bréfið rita: Bændasamtök Íslands Farmanna- og fiskimannasamband Íslands Landssamband íslenskra útvegsmanna Landssamband smábátaeigenda Landssamband stangaveiðifélaga Landssamband veiðifélaga Samtök atvinnulífsins Samtök fiskvinnslustöðva Sjómannasamband Íslands VM- félag vélstjóra og málmtæknimanna
Mest lesið Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Gleymdi að hann hefði staðið fyrir innleiðingu Evrópulaga Innlent Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Innlent Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Innlent Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Innlent Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Erlent Ítrekað hjólað á móti umferð Innlent Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Innlent Fleiri fréttir Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Gleymdi að hann hefði staðið fyrir innleiðingu Evrópulaga Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Sjá meira