Vísbendingar um hallalausan rekstur 21. júlí 2010 06:30 Landspítalinn greiddi um 210 milljónir króna í dráttarvexti á síðasta ári. Búið er að koma í veg fyrir greiðsludrátt með samningi við heilbrigðis- og fjármálaráðuneyti, segir framkvæmdastjóri fjármálasviðs spítalans. Fréttablaðið/GVA
Halli á rekstri Landspítalans á síðasta ári var ríflega 1,3 milljarðar króna, sem nemur um 3,5 prósentum af veltu spítalans. Reksturinn það sem af er ári virðist vera í jafnvægi. Í uppgjöri spítalans vegna ársins kemur fram að hallinn á síðasta ári skýrist að langmestu leyti af gengisfalli íslensku krónunnar. Fyrstu vísbendingar benda til þess að reksturinn það sem af er ári sé í jafnvægi, segir Anna Lilja Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landspítalans. Unnið er að hálfs árs uppgjöri spítalans í samvinnu við Ríkisendurskoðun. „Við þurftum að fara út í miklar hagræðingaraðgerðir í fyrra og í ár, en þetta hefur tekist án þess að verið sé að stofna öryggi sjúklinga í hættu,“ segir Anna. Hún varar við því að gengið verði of langt í lækkun framlaga til spítalans. Fjárheimildir og aðrar tekjur Landspítalans á síðasta ári voru um 37,5 milljarðar króna, og höfðu lækkað um 3,7 prósent frá fyrra ári. Útgjöldin drógust saman um 4,2 prósent, eða um 38,8 milljarða króna. „Við kaupum mjög mikið inn af lyfjum, sérhæfðum lækningum og tækjum erlendis frá, og þá kemur gengisfallið beint inn í kostnaðarverð þessara vara á árunum 2008 og 2009,“ segir Anna Lilja. Sé óhagstæð gengisþróun ekki talin með hefði hallareksturinn numið um 0,5 prósentum af veltu, eða tæplega 190 milljónum króna. Gengið hefur verið nokkuð stöðugt í ár, og því ekki búist við svipuðum áföllum á yfirstandandi ári. „Vegna gengisfalls krónunnar jókst rekstrarkostnaður í fyrra og árið áður, sem leiddi til þess að við höfðum safnað upp talsverðum halla í efnahagsreikningi,“ segir Anna. Hallinn var í árslok 2009 tæplega þrír milljarðar króna. Útistandandi kröfur spítalans voru um 1,7 milljarðar króna í lok síðasta árs. Anna segir þær kröfur hafa aukist verulega á árinu 2009, meðal annars vegna þess að aðrar heilbrigðisstofnanir hafi greitt seint og illa fyrir þjónustu sem hafi verið keypt af Landspítalanum. Anna segir að búið sé að komast fyrir skuldavanda Landspítalans og margra annarra heilbrigðisstofnana með samningum við heilbrigðisráðuneytið og fjármálaráðuneytið. Ríkið hafi lánað stofnununum fyrir skuldunum, svo ekki þurfi að greiða dráttarvexti. Eftir er að semja um hvernig lánin verða endurgreidd. „Þetta er skynsamlegra, þá erum við ekki að greiða dráttarvexti og erum með jafnvægi í rekstrinum,“ segir Anna. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira